Innlent

Þrýstir á hækkun lægstu launa

Nærri 6000 heimili þiggja neyðaraðstoð hjá sveitarfélögum landsins. Einhleypir karlar er langstærsti hópurinn sem er á framfæri Reykjavíkurborgar. Meirihluti velferðarráðs samþykkti að hækka framfærsluna í vikunni eftir átakafund, formaður ráðsins telur að hækkunin skapi þrýsting á hækkun lægstu launa.

Fréttastofa hefur undir höndum áfangaskýrslu um fátækt í Reykjavík, sem var lögð fyrir velferðarráð borgarinnar í gær. Hún sýnir að 2487 heimili voru á framfæri Reykjavíkur í fyrra. Stærsti einstaki hópurinn, 642, voru einhleypir karlar á aldrinum 25-39 ára.

Alls þáðu þrisvar sinnum fleiri einhleypir karlar, 1364, framfærslu hjá borginni í fyrra en einhleypar konur eða 441. Samanlagt er þetta yfir 70% af öllu því fólki sem nýtur framfærslu frá Reykjavík. Þá eru margfalt fleiri einstæðar mæður, eða 520, sem fá framfærslu heldur en einstæðir feður sem eru 39. Einstæðir foreldrar eru rúmur fimmtungur hópsins. Barnlaus hjón og hjón með börn eru lítill hluti þeirra sem fá framfærslu hjá borginni.

Þeim fjölgar hratt sem þiggja neyðarframfærslu eins og þessa. Á þessu ári höfðu tvöfalt fleiri þegið slíka aðstoð í eitt ár eða lengur heldur en 2007.

Eftir átakafund velferðarráðs var samþykkt að hækka einstaklingsframfærslu úr 125 þúsund krónum í 129 þúsund. Vinstri grænir saka meirihlutann um að svíkja fátæka fólkið í borginni og vilja meiri hækkun.

Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, gefur lítið fyrir þá gagnrýni. „Við erum að hækka um komandi áramót fjárhagsaðstoð einstaklinga um 19% og við erum að hækka fjárhagsaðstoð upp að atvinnuleysisbótum."

Með hærri hækkun segir Björk þyrfti að fara upp fyrir atvinnuleysisbætur. Það gangi ekki upp.

Skýrslan staðfestir þær fréttir sem Stöð 2 hefur flutt um að einstæðir foreldrar á bótum og framfærslustyrk standi fjárhagslega betur en einstæðir foreldrar í láglaunavinnu. „Talandi um lægstu laun og atvinnuleysisbætur. Það þarf að hækka en það eru ekki til peningar til þess," segir Björk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×