Innlent

Vitlaust að gera í vínbúðum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Mikið var að gera í vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu á þessum síðasta degi ársins. Verslanir ÁTVR voru opnar frá 10 til 14 í dag en undir lokun var fullt út úr dyrum og í sumum tilfellum náðu raðirnar langt út úr verslununum.

Nokkuð mikið hefur verið að gera í verslunum í dag og má þar meðal annars nefna Kjötkompaní en þar var orðið troðfullt af fólki strax við opnun. Einnig var mikið að gera í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu í dag, sem lokuðu klukkan 13.

Verslanir eru flestar opnar í dag. Matvöruverslanir eru flestar opnar til 15/16 og veitingastaðir margir hverjir opnir, en hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×