Loks sigur hjá Haukum | HK styrkti stöðu sína í 4. sæti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. febrúar 2020 18:30 HK styrkti stöðu sína í 4. sæti Olís deildar kvenna með góðum sigri í dag. Vísir/Bára
Þremur leikjum í Olís deild kvenna í dag er nú lokið. Haukar unnu sinn fyrsta sigur síðan 23. janúar er liðið lagði vann 27-22 sigur á KA/Þór að Ásvöllum í Hafnafirði. Þá vann HK góðan tveggja marka sigur, 27-25, á ÍBV. Þá náði Afturelding í sitt fyrsta stig á leiktíðinni þegar liðið náði 25-25 jafntefli gegn Stjörnunni. Haukar voru alltaf skrefi á undan gestum sínum frá Akureyri í dag og unnu á endanum fimm marka sigur, 27-22. Eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 14-13, þá stigu þeir á bensíngjöfina í síðari hálfleik og lönduðu stigunum tveimur. Berta Rut Harðardóttir var frábær í liði Hauka en hún gerði 10 mörk, þá skoraði Ragnheiður Ragnarsdóttir sex mörk. Í liði KA/Þór var Ásdís Guðmundsdóttir einnig með tíu mörk á meðan Martha Hermannsdóttir skoraði fimm. Bæði lið eru með 14 stig, líkt og ÍBV, í 5. til 7. sæti Olís deildar kvenna. ÍBV hefði getað lyft sér upp fyrir Hauka og KA/Þór en liðið tapaði gegn HK í Kópavoginum í dag. Eftir einkar jafnan leik lönduðu HK stúlkur tveggja marka sigri 27-25 og styrktu þar með stöðu sína í 4. sæti deildarinnar þar sem þær eru með 18 stig. Díana Kristín Sigmarsdóttir var markahæst í liði HK með sjö mörk og Sigríður Hauksdóttir kom þar á eftir með sex. Hjá ÍBV var Sunna Jónsdóttir markahæst með sjö mörk. Að lokum náði Afturelding í sitt fyrsta stig með jafntefli í Garðabænum. Afturelding var reyndar þremur mörkum yfir þegar lítið var eftir af leiknum en þeim tókst ekki að sigla fyrsta sigrinum í hús. Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar með sjö mörk en Anamaria Gugic og Roberta Ivanauskaite skoruðu einnig sjö mörk hvor hjá Aftureldingu. Stjarnan er í 3. sæti með 20 stig, tveimur meira en HK.
Olís-deild kvenna Tengdar fréttir Leik lokið: Valur - Fram 24-28 | Fram jók forskot sitt á toppi deildarinnar Fram er komið neð níu fingur á deildarmeistaratitilinn eftir fjögurra marka sigur á Íslandsmeisturum Vals að Hlíðarenda í dag. Lokatölur 28-24 Framstúlkum í vil í fjörugu uppgjöri toppliða Olís deildar kvenna. Viðtöl og frekari umfjöllun væntanleg. 29. febrúar 2020 19:15 Mest lesið Loks hreyfing á skrifstofunni hjá Liverpool Enski boltinn Segir AGF allt annað lið eftir að Mikael fór á miðjuna Fótbolti KR slítur samstarfinu „án nokkurs fyrirvara“ Íslenski boltinn Uppsöfnuð spjöld gætu haft áhrif: Tólf í banni Íslenski boltinn Palmer besti ungi leikmaðurinn en þó ekki í liði ársins Enski boltinn Nik eftir veisluna í Laugardal: Viljum halda pressunni á Val Íslenski boltinn KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ Íslenski boltinn Hákon Arnar með stoðsendingu í mikilvægum sigri Lille Fótbolti Ólafur Karl þénaði mest af leikmönnum Bestu deildarinnar í fyrra Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Fylkir 2-0 | Bikarmeistararnir höfðu betur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafnarfjarðarmótið haldið á Ásvöllum í ár Fóru illa að ráði sínu gegn Egyptum Dagur Árni í liði mótsins á EM Ungu strákarnir okkar grátlega nálægt bronsi Stelpurnar unnu Gíneu en spila um Forsetabikarinn Gull, silfur og brúðkaup Stórt tap í undanúrslitum gegn Dönum Íslendingar í undanúrslit á EM Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni Tekur fimmtánda tímabilið með FH Stór skellur í fyrsta leik á HM í Kína Tap gegn Spáni en Ísland gæti enn spilað um verðlaun „Ætti að læsa þann inni sem fann upp á þessu kerfi“ Óttast um framtíð handboltans á Ólympíuleikunum Íslenski Daninn náði slemmunni „Nú færðu loksins tíma til að gera það sem þú hefur mest gaman af“ Rústuðu Þjóðverjum í úrslitaleiknum Enn og aftur unnu Spánverjar brons Tíundu gullverðlaun Þóris sem þjálfara Noregs Handboltaparið bæði í úrslitum á Ólympíuleikunum Fyrstu verðlaun Dana í tuttugu ár Hetjulegur endasprettur dugði Slóvenum skammt Alfreð stýrði Þýskalandi í úrslitaleik Ólympíuleikanna Hver er þessi þýski Petersson sem skaut Frakkana í kaf? Þórir með norska liðið í úrslitaleik Ólympíuleikanna Frakkar í úrslit eftir dramatík Norðmenn úr leik og Slóvenar í undanúrslit í fyrsta sinn Heimsmeistararnir áfram í undanúrslit eftir spennutrylli gegn Svíum Þjóðverjar í undanúrslit eftir ótrúlega dramatík Spánverjar í undanúrslit eftir mikla spennu og framlengingu Sjá meira
Leik lokið: Valur - Fram 24-28 | Fram jók forskot sitt á toppi deildarinnar Fram er komið neð níu fingur á deildarmeistaratitilinn eftir fjögurra marka sigur á Íslandsmeisturum Vals að Hlíðarenda í dag. Lokatölur 28-24 Framstúlkum í vil í fjörugu uppgjöri toppliða Olís deildar kvenna. Viðtöl og frekari umfjöllun væntanleg. 29. febrúar 2020 19:15