„Algjör vitleysa“ að Kim Jong-Un ætli að opna veitingastað í Skotlandi Bjarki Ármannsson skrifar 12. janúar 2015 17:43 Kim Jong-Un er talinn áhugamaður um málefni Skotlands. Vísir/AFP
Fulltrúar norður-kóreskra stjórnvalda neita því að leiðtogi landsins, Kim Jong-Un, hyggist nú opna veitingastað í Skotlandi. Blaðið Scotsman birti í dag frétt þar sem fullyrt var um þessi áform og sagði Michael Madden, sérfræðingur um málefni asíska einræðisríkisins, í viðtali við blaðið að það kæmi honum „alls ekki á óvart“ ef slíkur staður myndi opna í Skotlandi. Jong-Un er sagður hafa fengið talsverðan áhuga á málefnum Skotlands við að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði landsins í september. Var þá haft eftir honum að það væri „mjög jákvætt“ ef Skotar fengju sjálfstæði frá Bretlandi, en sú varð ekki raunin. Þá er skoskt viskí í miklu uppáhaldi hjá efri stéttum Norður-Kóreu og gæti það hafa hjálpað til við að hrinda orðrómnum um veitingastað í Skotlandi af stað. Í samtali við breska blaðið The Independent segir hins vegar talsmaður norður-kóreska sendiráðsins í Bretlandi ekkert til í getgátunum. „Þetta er algjör vitleysa,“ segir hann.Ungar konur syngja fyrir viðskiptaviniVeitingahúsakeðjan Pyongyang, sem heitir í höfuðið á höfuðborg Norður-Kóreu, er í eigu ríkisstjórnar Jong-Un og rekur nokkra staði utan landsteinanna. Meðal annars er slíka staði að finna í Peking og Kúala Lúmpúr og í Amsterdam, en þar í borg breytti staðurinn um nafn árið 2013. Veitingastaðirnir bjóða upp á norður-kóreskan mat ásamt því að ungar konur dansa, syngja og leika á hljóðfæri fyrir gestina milli þess sem þær bera fram matinn.
Tengdar fréttir Kalla Barack Obama "apa“ Þjóðaröryggisráð Norður Kóreu segir Bandaríkin hafa lokað fyrir netaðgang þjóðarinnar. 27. desember 2014 13:51 Fullyrða að Norður-Kórea hafi staðið að árásinni á Sony „Það var mjög viturt af ykkur að hætta við útgáfu The Interview,“ sagði meðal annars í póstinum sem yfirmenn hjá Sony fengu frá tölvuþrjótunum í gær. 19. desember 2014 16:15 Norður-Kórea hótar Bandaríkjunum „Orðrómar um netárás Norður-Kóreu var búinn til af leppstjórn Suður-Kóreu,“ segir í tilkynningu frá Pyonyang. 22. desember 2014 11:00 Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Erlent Fleiri fréttir Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Sjá meira
Kalla Barack Obama "apa“ Þjóðaröryggisráð Norður Kóreu segir Bandaríkin hafa lokað fyrir netaðgang þjóðarinnar. 27. desember 2014 13:51
Fullyrða að Norður-Kórea hafi staðið að árásinni á Sony „Það var mjög viturt af ykkur að hætta við útgáfu The Interview,“ sagði meðal annars í póstinum sem yfirmenn hjá Sony fengu frá tölvuþrjótunum í gær. 19. desember 2014 16:15
Norður-Kórea hótar Bandaríkjunum „Orðrómar um netárás Norður-Kóreu var búinn til af leppstjórn Suður-Kóreu,“ segir í tilkynningu frá Pyonyang. 22. desember 2014 11:00