Innlent

Velti bíl og flúði af vettvangi

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Vilhelm

Ökumaður bíls sem valt í Hafnarfirði flúði af vettvangi en var handtekinn skömmu síðar.

 Að því er fram kemur í dagbókaruppfærslu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag var ökumaðurinn handtekinn eftir bílveltuna og færður í fangaklefa en hann er grunaður um að hafa ekið bílnum undir áhrifum fíkniefna.

Þá hefur lögreglan þurft að hafa afskipti af að minnsta kosti tveimur ökumönnum til viðbótar í morgun sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×