„Það eru náttúrulega vonbrigði að við skyldum ekki gera meiri leik úr þessu. Við ætluðum okkur sannarlega meira hérna í dag. En við vorum bara því miður ekki að ná því fram sem við ætluðum okkur. Þetta eru vonbrigði,“ sagði Arnar við RÚV eftir leik.
„Mér fannst við vera of linar. Fannst í aðgerðunum, skotunum eins og það vantaði smá hugrekki. Við vorum oft á tíðum að fá ágætis möguleika til að negla á markið en vorum ekki að nýta það.“
„Vorum líka oft á tíðum að spila okkur í færi þegar boltinn fékk að ganga einum lengra, þegar við náðum að skila honum af okkur, sem við vorum ekki að nýta. Vorum við ekki nógu góðar í sókninni. Ekki nógu beittar.“
„Er alveg sáttur við varnarleikinn á heildina litið. Er líka alveg sáttur að við hleyptum þeim ekki í mörg hraðaupphlaup og vorum ekkert að missa þær fram úr okkur þar. Það er samt fullt af hlutum bæði í vörn og sókn sem við hefðum getað gert betur. Við vissum alveg að við værum að fara hingað í erfiðan leik og allir hefðu þurft að eiga sinn besta dag, það gekk því miður ekki upp.“
„Við þurfum að njóta þess að spila þennan seinni leik og gera okkar besta,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari að loknu tapi Íslands í Slóveníu í dag. Viðtalið í heild sinni má sjá vef RÚV.