Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is.
183 eru nú í einangrun, en voru 177 í gær. 408 er nú í sóttkví, en voru 443 í gær. 1.083 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fjórir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.
Ekkert smit greindist á landamærum í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 45,5, en var 43,4 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 4,4.
34.492 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 52.546 til viðbótar.
Alls hafa 6.456 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.578 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 493 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 287 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.
Fréttin hefur verið uppfærð.