Innlent

Brýnt að bregðast við svo atvinnuleysi eftir krísu verði ekki meira en fyrir

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Róbert Farestveit sviðstjóri stefnumótunar og greiningar hjá ASÍ segir hættu á að meira atvinnuleysi verði hér á landi en við höfum áður vanist. Brýnt sé að bregðast við.
Róbert Farestveit sviðstjóri stefnumótunar og greiningar hjá ASÍ segir hættu á að meira atvinnuleysi verði hér á landi en við höfum áður vanist. Brýnt sé að bregðast við.

Í nýrri skýrslu ASÍ um áhrif Covid-faraldursins á afkomu launafólks kemur fram að samdrátturinn kom meira niður á viðkvæmum hópum en í öðrum íslenskum kreppum. Þá sé hætta á auknu kerfislægu atvinnuleysi eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Stjórnvöld eru hvött til að huga að bættri stefnumótun í atvinnu- og vinnumarkaðsmálum.

Í skýrslunni sem kom út í dag og heitir, Íslenskur vinnumarkaður 2021,  kemur fram að þrátt fyrir að efnahagslegur samdráttur hafi reynst minni en óttast var í fyrstu skilji Covid- kreppan eftir sig djúp sár á vinnumarkaði. Þannig hafi byrðar samdráttarins dreifst á smærri og viðkvæmari hópa en í öðrum íslenskum kreppum. 

Róbert Farestveit sviðstjóri stefnumótunar og greiningar hjá ASÍ segir einkum tvennt koma til.

„Annars vegar  skammtímaáhrif sem birtast í verulegu tekjufalli atvinnuleitenda eða  37% tekjufalli og hins vegar langtímaáhrif á vinnumarkaði en þar eru ákveðin hættumerki.  Ein hættan er að hér verði hærra atvinnuleysisstig eftir krísuna en fyrir og kannski meira en Íslendingar hafa átt að venjast,“ segir Róbert.

Háskólamenntuðum á atvinnuleysiskrá hefur fjölgað mikið á síðustu árumVísir

Hann segir ýmsar skýringar á því af hverju hætta sé á meira atvinnuleysi eftir faraldurinn en Íslendingar eigi að venjast. 

„Þetta getur verið samspil ýmissa þátta.  Þá af því hvaða atvinna verður til eftir krísu og hvaða hvaða mannauður er til staðar. Þannig að við hjá ASÍ leggjum til tillögur sem geta þá dregið úr þessu ójafnvægi t.d. með bættum úrræðum fyrir atvinnuleitendur, bættum menntunarúrræðum o.s.frv.,“ segir Róbert.

Í skýrslunni koma fram átta tillögur sem ASÍ leggur til að stjórnvöld grípi til. 

Róbert segir brýnt að bregðast við.

„Við myndum alla vega vilja sjá stjórnvöld horfa til þessara tillagna nú þegar   heildarendurskoðun á atvinnuleysistryggingarkerfinu stendur fyrir dyrum,“ segir hann. 

Ólíklegt að atvinnulausir hafni vinnu

Fram hefur komið að ferðaþjónustunni sárvantar starfsfólk og þrátt fyrir mikið atvinnuleysi sé erfitt að ráða í allar stöður þar. 

„Það tekjufall sem atvinnuleitendur hafa orðið fyrir bendir til þess að það sé mikill hvati til vinnu hjá atvinnuleitendum.  þannig að ég myndi telja ólíklegt að þetta sé eitthvað stórt vandamál á vinnumarkaði þ.e. að fólk á atvinnuleysisskrá þiggi ekki þá  vinnu sem því er boðið,“ segir Róbert. 

ASÍ hefur áhyggjur af miklu langtímaatvinnuleysiVísir

Tengdar fréttir

„Bráðvantar starfsfólk í ferðaþjónustu“

Formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir bráðvanta starfsfólk í geirann. Ferðaþjónustan sé að taka fyrr við sér en gert var ráð fyrir. Þá þurfi að ráða þúsundir aftur inn fyrir haustið.

Bjartsýni að aukast á vinnumarkaði

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir tekið að birta yfir atvinnulífinu. Tekist hafi að útvega fjölda fólks vinnu með átaki stjórnvalda undir kjörorðinu Hefjum störf. Dæmi er um að gæs leiti skjóls hjá stofnuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×