Kapphlaupið í hundrað landsleiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2021 12:31 Aron Einar Gunnarsson, Birkir Már Sævarsson og Ragnar Sigurðsson eru allir komnir mjög nálægt því að spila hundrað landsleiki fyrir Ísland. Getty/Pressefoto Ulmer Rúnar Kristinsson er eini Íslendingurinn sem hefur náð að spila hundrað leiki fyrir A-landsliðs karla í knattspyrnu. Það er hins vegar von á því að það bætist í hópinn í ár og það eru nokkrir sem eru til kallaðir. Ragnar Sigurðsson spilaði sinn 97. A-landsleik 12. nóvember 2020 og var þá langlíklegastur til að verða maður númer tvö í hundrað leiki fyrir karlalandsliðið. Ragnar var eftir þennan leik á móti Ungverjum í Búdapest, fyrir sjö mánuðum síðan, með fjögurra leikja forskot á næsta mann sem var Birkir Már Svarsson. Hann var líka sjö leikjum á undan þeim Aroni Einari Gunnarssyni og Birki Bjarnasyni. Nú er staðan orðin allt önnur. Á meðan Ragnar Sigurðsson hefur ekki spilað aftur fyrir A-landsliðið þá hafa hinir þrír gert miklu meira en að nálgast hann. Í leiknum á móti Færeyjum á föstudagskvöldið þá komst Birkir Bjarnason upp að hlið Ragnars og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar er aðeins einum leik á eftir. Í annað sætið er aftur á móti kominn Birkir Már Sævarsson með 98 landsleiki. Birkir Már missti þó af leikjunum á móti Færeyjum og Póllandi og af möguleikanum á því að verða annar íslenski landsliðsmaðurinn í hundrað leiki. Birkir fór heim til að hjálpa Valsmönnum í Pepsi Max deildinni. Nafni hans Birkir Bjarnason nær Birki Má væntanlega í Póllandsleiknum í kvöld og þá ætti Aron Einar að ná Ragnari Sigurðssyni í sama leik. Staðan væri þá þannig að fjórir leikmenn væru þá með á bilinu 97 til 98 landsleiki. Íslenska liðið spilar næst þrjá leiki í september og þar ætti einhver þessara leikmanna og jafnvel fleiri en einn að komast í hundrað leikja klúbbinn. Rúnar hefur verið sá eini í klúbbnum síðan 11. júní 2003 eða í rétt tæp átján ár. Rúnar hefur ennfremur átt markametið í tæp 22 ár eða síðan að hann jafnaði leikjamet Guðna Bergssonar 18. ágúst 1999. Rúnar hefur átt það einn síðan 8. september 1999. Flestir leikir fyrir karlalandslið Íslands í knattspyrnu: Rúnar Kristinsson 104 landsleikir Birkir Már Sævarsson 98 landsleikir Birkir Bjarnason 97 landsleikir Ragnar Sigurðsson 97 landsleikir Aron Gunnarsson 96 landsleikir Kári Árnason 89 landsleikir Hermann Hreiðarsson 89 landsleikir Eiður Smári Guðjohnsen 88 landsleikir Guðni Bergsson 80 landsleikir Jóhann Berg Guðmundsson 79 landsleikir Ari Freyr Skúlason 79 landsleikir HM 2022 í Katar Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Sjá meira
Ragnar Sigurðsson spilaði sinn 97. A-landsleik 12. nóvember 2020 og var þá langlíklegastur til að verða maður númer tvö í hundrað leiki fyrir karlalandsliðið. Ragnar var eftir þennan leik á móti Ungverjum í Búdapest, fyrir sjö mánuðum síðan, með fjögurra leikja forskot á næsta mann sem var Birkir Már Svarsson. Hann var líka sjö leikjum á undan þeim Aroni Einari Gunnarssyni og Birki Bjarnasyni. Nú er staðan orðin allt önnur. Á meðan Ragnar Sigurðsson hefur ekki spilað aftur fyrir A-landsliðið þá hafa hinir þrír gert miklu meira en að nálgast hann. Í leiknum á móti Færeyjum á föstudagskvöldið þá komst Birkir Bjarnason upp að hlið Ragnars og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar er aðeins einum leik á eftir. Í annað sætið er aftur á móti kominn Birkir Már Sævarsson með 98 landsleiki. Birkir Már missti þó af leikjunum á móti Færeyjum og Póllandi og af möguleikanum á því að verða annar íslenski landsliðsmaðurinn í hundrað leiki. Birkir fór heim til að hjálpa Valsmönnum í Pepsi Max deildinni. Nafni hans Birkir Bjarnason nær Birki Má væntanlega í Póllandsleiknum í kvöld og þá ætti Aron Einar að ná Ragnari Sigurðssyni í sama leik. Staðan væri þá þannig að fjórir leikmenn væru þá með á bilinu 97 til 98 landsleiki. Íslenska liðið spilar næst þrjá leiki í september og þar ætti einhver þessara leikmanna og jafnvel fleiri en einn að komast í hundrað leikja klúbbinn. Rúnar hefur verið sá eini í klúbbnum síðan 11. júní 2003 eða í rétt tæp átján ár. Rúnar hefur ennfremur átt markametið í tæp 22 ár eða síðan að hann jafnaði leikjamet Guðna Bergssonar 18. ágúst 1999. Rúnar hefur átt það einn síðan 8. september 1999. Flestir leikir fyrir karlalandslið Íslands í knattspyrnu: Rúnar Kristinsson 104 landsleikir Birkir Már Sævarsson 98 landsleikir Birkir Bjarnason 97 landsleikir Ragnar Sigurðsson 97 landsleikir Aron Gunnarsson 96 landsleikir Kári Árnason 89 landsleikir Hermann Hreiðarsson 89 landsleikir Eiður Smári Guðjohnsen 88 landsleikir Guðni Bergsson 80 landsleikir Jóhann Berg Guðmundsson 79 landsleikir Ari Freyr Skúlason 79 landsleikir
Flestir leikir fyrir karlalandslið Íslands í knattspyrnu: Rúnar Kristinsson 104 landsleikir Birkir Már Sævarsson 98 landsleikir Birkir Bjarnason 97 landsleikir Ragnar Sigurðsson 97 landsleikir Aron Gunnarsson 96 landsleikir Kári Árnason 89 landsleikir Hermann Hreiðarsson 89 landsleikir Eiður Smári Guðjohnsen 88 landsleikir Guðni Bergsson 80 landsleikir Jóhann Berg Guðmundsson 79 landsleikir Ari Freyr Skúlason 79 landsleikir
HM 2022 í Katar Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Sjá meira