Innlent

Vara­þing­­maður VG í Norð­vestur: „Er nokkuð annað en upp­kosning í boði?“

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Lilja Rafney missti oddvitasæti sitt og er nú varaþingmaður VG í kjördæminu.
Lilja Rafney missti oddvitasæti sitt og er nú varaþingmaður VG í kjördæminu. vísir/vilhelm

Lilja Raf­n­ey Magnús­dóttir, vara­þing­maður Vinstri grænna í Norð­vestur­kjör­dæmi, vill að Al­þingi velji þá leið að halda upp­kosningu í kjör­dæminu. Hún segir traust á fram­kvæmd kosninga verða að vera hafna yfir allan vafa.

„Er nokkuð annað en uppkosning í boði í NV þegar ekki er hægt að sanna að ekki hafi verið átt við kjörgögnin milli talninga, sem lögreglurannsókn hefur sýnt fram á að meðferð kjörgagna hafi verið brot á kosningalögum?“ spyr Lilja Rafney í færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Hún vísar þar til þess að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð eða það tryggt með fullnægjandi hætti að enginn kæmist í þau frá því að fyrri lokatölur voru gefnar út í kjördæminu og þar til endurtalningin fór fram sem breytti öllu.

„Virðing við lýðræðið og traust á framkvæmd kosninga þarf að vera hafin yfir allan vafa,“ skrifar Lilja.

Hún hafði setið á þingi fyrir VG síðan 2009, sem oddviti kjördæmisins. Hún tapaði hins vegar í prófkjörinu í ár fyrir Bjarna Jónssyni sem leiddi listann í hennar stað og komst inn á þing. Lilja sat í öðru sæti listans og situr nú sem varaþingmaður.

Bjarni Jónsson er nýr á þingi fyrir VG.aðsend

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra situr í undirbúningskjörbréfanefnd fyrir VG en nefndin hefur enn ekki klárað störf sín. Hún mun ekki skila af sér greinargerð fyrr en eftir að kjörbréfanefnd hefur verið kjörin eftir þingsetningu næsta þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×