Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.

Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni um kórónuveirufaraldurinn en hátt í átta hundruð manns greindust smitaðir í gær.

Þá tökum við stöðuna á faraldrinum í Vestmannaeyjum en hópsmit er komið upp á hjúkrunarheimili þar í bæ.

Ennfremur verður rætt við lögfræðing sem í dag ætlar að láta reyna á það fyrir dómi hvort hægt sé að skylda einkennalaust fólk í einangrun í faraldrinum.

Einnig heyrum við í varaþingmanninum Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur sem í dag tók sæti á Alþingi. Hún er sú yngsta í sögunni til að setjast á þing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×