Lífið

Byrjaði aftur með fyrrverandi eftir einangrun

Elísabet Hanna skrifar
Hjónin skyldu árið 2017 áður en þau einangruðu sig saman.
Hjónin skyldu árið 2017 áður en þau einangruðu sig saman. Getty/ Bruce Glikas

Ben Stiller og fyrrverandi eiginkona hans Christine Taylor hafa tekið aftur saman eftir að þau einangruðu sig vegna heimsfaraldursins. Þau tóku þá ákvörðun um að flytja inn saman til þess að Ben gæti einnig verið með börnunum í heimsfaraldrinum. 

Ástin virðist hafa kviknað á ný þegar þau náðu að eyða þessum tíma saman ásamt börnunum sínum Ellu og Quinlan.

„Svo, með tímanum, þróaðist þetta“ sagði hann „Við vorum búin að fara í sundur en byrjuðum aftur saman og við erum ánægð með það.“

Parið árið 2016 á körfuboltaleik en þau eru eflaust jafn ánægð með ástina í dag og leikinn þá.Getty/ James Devaney

Upphaflega voru þau gift í átján ár áður en þau skildu árið 2017. 

„Þetta er búið að vera dásamlegt fyrir okkur öll, óvænt og eitt af því góða sem kom út úr heimsfaraldrinum,“

bætir hann við. Stiller og Taylor hafa starfað saman við kvikmyndir á borð við Zoolander, Dodgeball: A True Underdog Story og Tropic Thunder.


Tengdar fréttir

Ben Stiller og Christine Taylor skilin

Leikarahjónin Ben Stiller og Christine Taylor eru skilin að skiptum en þau eiga saman tvö börn. Parið kynntist við tökur á sjónvarpsþættinum Heat Vision and Jack sem þó var aldrei sýndur í sjónvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×