Lífið samstarf

Taktu þátt í leik og þú gætir unnið nótt á Hótel Húsa­felli

Hótel Húsafell
Hótel Húsafell er fjögurra stjörnu lúxushótel með rómaðan veitingastað.
Hótel Húsafell er fjögurra stjörnu lúxushótel með rómaðan veitingastað.

Spennandi gjafabréfaleikur stendur nú yfir á facebooksíðu Hótels Húsafells.

Á Húsafelli hefur orðið mikil uppbygging fyrir ferðamenn. Eitt af glæsilegri hótelum landsins er staðsett á Húsafelli. Hótelið er fjögurra stjörnu lúxushótel með rómaðan veitingastað sem leggur áherslu á að íslenskt hráefni fái að njóta sín í alþjóðlegri matargerð. Matseðlarnir eru árstíðarbundnir og sérvaldir af hæfum matreiðslumönnum hótelsins.

Hótel Húsafell hefur notið mikilla vinsælda meðal erlendra ferðamanna og einnig eru Íslendingar mjög duglegir að sækja hótelið heim. En hátt í einn þriðji af hótelgestum Húsafells eru Íslendingar sem er hærra hlutfall en gengur og gerist hér á landi.

Sundlaugin á Húsafelli hefur verið vinsæll viðkomustaður í gegnum áratugina en í vetur hafa staðið yfir miklar endurbætur á sundlauginni. Verið er að bæta við heitum pottum og setja upp gufubað í sundlauginni svo fátt eitt sé nefnt. Að endurbótum loknum mun sundlaugin færast nær hótelinu í gæðum og verður frábær staður til þess að slaka á.

Þú gætir unnið ferð í Giljaböðin en þau hafa fengið hafa mikið lof gesta

Nýjasta viðbótin á svæðinu eru hin rómuðu Giljaböð sem hafa fengið hafa mikið lof gesta. Nýverið fengu böðin úthlutunina "The World’s Greatest Travel Experiences for 2022" ásamt einungis 13 öðrum stöðum í heiminum af ferðarisanum Culture Trip. Fjórar skipulagðar ferðir eru á dag frá Húsafelli í Giljaböðin. Steinhlaðnar náttúrulaugarnar eru staðsettar ofan í ævintýralegu gili sem eykur á upplifun gestsins er slakað er á í Giljaböðunum.

Þú getur unnið gjafabréf

Hótel Húsafell býður nú upp á gjafabréfaleik á Facebook þar sem hægt er að vinna gistingu fyrir tvo með morgunverði ásamt ferð í Giljaböðin. Til að komast í pottinn þurfa þátttakendur einungis að fara inn á Facebook-síðu Hótels Húsafells og segja í athugasemd við færsluna hverjum þeir myndu vilja bjóða með sér. Dregið verður í leiknum 1. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.