Fótbolti

Meira en tvö­faldaðist í verð­mæti á liðnu tíma­bili

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brasilíumaðurinn átti fínasta tímabil með Real.
Brasilíumaðurinn átti fínasta tímabil með Real. EPA-EFE/MOHAMMED BADRA

Vinícius Júnior átti stórkostlegt tímabil er Real Madríd varð Evrópu- og Spánarmeistari. Tvöfaldaðist þessi ungi Brasilíumaður í verðmæti á leiktíðinni.

Hinn 21 árs gamli Vinícius Jr. hefur verið á Spáni síðan 2018 er Real keypti hann á 38 milljónir punda. Varð hann um leið dýrasti leikmaður sögunnar sem ekki hafði náð sjálfræðisaldri.

Vinicíus Jr. hefur síðan þá verið að vinna sig hægt og bítandi inn í byrjunarlið Real. Á síðustu leiktíð kom hann alls við sögu í 49 leikjum hjá Real, skoraði hann 6 mörk og lagði upp 7 á samherja sína.

Það var svo á þessari leiktíð sem Brasilíumaðurinn sprakk gjörsamlega út á vinstri væng Real. Alls lék hann 52 leiki, skoraði 22 mörk og lagði upp 20 til viðbótar. Þar á meðal sigurmarkið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Er það ástæðan fyrir því að verðmæti leikmannsins fór úr 44 milljónum Bandaríkjadala upp í 100 milljónir Bandaríkjadala. Engar líkur eru á að Real myndi selja Vinicíus Jr. en fari svo að eitthvað lið myndi falast eftir kröftum hans myndi Real eflaust vilja tvöfalda þá upphæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×