Fótbolti

Agu­ero um brott­för Messi hjá Bar­ca: Hélt að þetta væri grín

Atli Arason skrifar
Sergio Aguero og Lionel Messi léku saman með argentíska landsliðinu en náðu aldrei leik saman með félagsliði.
Sergio Aguero og Lionel Messi léku saman með argentíska landsliðinu en náðu aldrei leik saman með félagsliði. Getty Images

Sergio Aguero hélt að hann væri að fara að spila með besta vini sínum, Lionel Messi, þegar hann samdi við Barcelona síðasta sumar. Stuttu síðar yfirgaf Messi spænska liðið og Aguero trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá tilkynningu félagsins.

Agu­ero samdi við Barcelona á frjálsri sölu frá Manchester City eftir að samningur hans við City rann út. Helsta hvöt Agu­ero fyrir því að semja við Barcelona á lakari kjörum en það sem hann fékk hjá City, var að spila með vini sínum til margra ára, stór­stjörnunni Lionel Messi.

Bæði Agu­ero og Messi spiluðu saman hjá argentínska lands­liðinu en Agu­ero vildi fá að spila með Messi í fé­lags­liði áður en skórnir færu á hilluna.

Agu­ero opnaði sig um það hvernig hann komst að því að Messi væri að yfir­gefa Barcelona í við­tali við blaða­manninn Jose Al­varez.

„Ég var með fé­laga mínum sem er í símanum sínum en horfir skyndi­lega á mig og spyr mig hvort þetta sé grín. Þá sýnir hann mér mynd af til­kynningu Barcelona. Ég var viss um að ein­hver hafi brotist inn á að­gang Bar­ca á sam­fé­lags­miðlum. Ég hélt að þetta væri ein­hvers­konar grín,“ sagði Agu­ero.

Þá var til­kynnt um að Messi hafi yfir­gefið Barcelona vegna fjár­hags­örðug­leika spænska liðsins en síðar gekk Messi til liðs við Paris Saint-Germain. Sú til­kynning kom ekki einungis Agu­ero í opna skjöldu, heldur einnig öllum knatt­spyrnu­heiminum.

Agu­ero náði því aldrei að leika með sama fé­lags­liði og Messi. Þegar allt kom til alls var ferill Agu­ero hjá Barcelona stuttur þar sem hann lék einungis fimm leiki fyrir fé­lagið vegna hjart­sláttar­truflana sem urðu til þess að leik­maðurinn varð leggja skónna á hilluna, fyrr en á­ætlað var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×