Lífið

Í vanda staddar vegna „Brid­ger­ton“ tón­leika

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Abigail Barlow og Emily Bear þegar þær unnu Grammy-verðlaun í ár fyrir bestu söngleikjaplötuna.
Abigail Barlow og Emily Bear þegar þær unnu Grammy-verðlaun í ár fyrir bestu söngleikjaplötuna. Getty/David Becker

Höfundar óopinbera Bridgerton söngleiksins, Abigail Barlow og Emily Bear hafa nú verið lögsóttar af Netflix fyrir brot á hugverkarétti.

Margir kannast eflaust við Netflix þættina „Bridgerton“ sem byggðir eru á samnefndum bókum eftir rithöfundinn Julia Quinn en Barlow og Bear sömdu söngleikjalög byggð á fyrstu seríu þáttanna.

Lögin gáfu þær út árið 2021 en þær sýndu frá sköpunarferlinu á samfélagsmiðlinum Tiktok og hlutu Grammy-verðlaun fyrir plötuna. Nú eru þær stöllur í vanda staddar vegna tónleika sem þær skipulögðu í kringum plötuna.

@abigailbarlowww LONDON! Barlow & Bear are so excited to announce The Unofficial Musical LIVE in Concert at Royal Albert Hall this September! Get your tickets at www.royalalberthall.com #bridgertonmusical original sound - Abigail Barlow

Netflix hefur nú kært Barlow og Bear fyrir brot á hugverkarétti en samkvæmt fréttamiðlinum NPR segir Netflix höfundana „vera komna langt fyrir utan mörk þess hefðundna efnis sem skapað sé gjarnan af aðdáendum.“ 

Barlow og Bear hafi sagt að Netflix hafi stutt útgáfu plötunnar en Netflix segir í kærunni að „þeim hafi aldrei verið veitt leyfi til þess að skapa verk byggð á Bridgerton.“ 

Ástæða þess að Netlix sé að lögsækja Barlow og Bear núna en ekki um leið og platan kom út árið 2021 séu tónleikar sem þær héldu, vegna plötunnar 26. júlí síðastliðinn og fyrirhugaðir tónleikar í London.

Netflix segist hafa boðist til þess að veita þeim ákveðna heimild til þess að halda áfram með tónleikahald ásamt öðru tengdu plötunni en Barlow og Bear hafi hafnað tilboðinu. 

Líf verksins, tónleikarnir og möguleikinn á því að það komist einhverntímann á Broadway séu vegna þessa í lausu lofti. Sérfræðingar á þessum sviðum segi mál sem þessi oft vera leyst utan réttarhalda en röksemdarfærsla Netflix sé sterk og Barlow og Bear vilji ef til vill sleppa við réttarhöld.

„Bridgerton“ plötu Barlow og Bear má hlusta á hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.