Hákon Daði vonast til að vera klár í síðasta lagi eftir tvær vikur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. ágúst 2022 17:15 Hákon Daði í leik með Gummersbach. Getty Images Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson stefnir á að vera kominn á fullt eftir aðeins tvær vikur. Hann leikur með Gummersbach í Þýskalandi en liðið er nýliði í efstu deild þar í landi.
Hákon Daði sleit krossband í hné í desember á síðasta ári og verður að segjast að bati hans hefur verið einkar skjótur. Hornamaðurinn staðfesti í stuttu spjalli við handbolti.is að hann væri að stefna á að snúa aftur eftir aðeins eina til tvær vikur. Vonast hann til að mega byrja þá „á fullu í handboltanum og vera útskrifaður af þessum meiðslum.“ Hákon Daði gekkst undir aðgerð stuttu eftir meiðslin og virðist sem endurhæfingin hafi gengið nær fullkomlega upp. Ljóst er að um mikinn liðsstyrk væri að ræða fyrir lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar en liðið á erfitt verkefni fyrir höndum í vetur. Hákon Daði gekk í raðir Gummersbach á síðasta ári eftir að hafa farið mikinn með Haukum og ÍBV í Olís-deild karla undanfarin ár. Hann var meðal markahæstu leikmanna deildarinnar þegar hann sleit en skömmu áður hafði hann verið valinn í leikmannahóp Íslands sem fór á Evrópumótið í Ungverjalandi síðastliðinn janúar. Hákon Daði er samningsbundinn Gummersbach til sumarsins 2024 og stefnir eflaust á að aðstoða liðið eftir bestu getu í deild þeirra bestu í Þýskalandi.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira