Fótbolti

Kolbeinn skoraði og Hjörtur byrjaði

Árni Jóhannsson skrifar
Bjarki Steinn Bjarkason og Kolbeinn Þórðarson í baráttunni Ramos.
Bjarki Steinn Bjarkason og Kolbeinn Þórðarson í baráttunni Ramos. Vísir/Vilhelm

Kolbeinn Þórðarson og Hjörtur Hermannsson byrjuðu báðir í sigurleikjum fyrir lið sín í kvöld. Lommel, lið Kolbeins, lagði varalið Standard Liegé og Hjörtur var í hjarta varnarinnar fyrir Pisa í ítölsku B-deildinni.

Kolbeinn kom liði sínu á bragðið á 41. mínútu með virkilega góðu skoti sem má sjá hér að neðan. Lommel klárði leikinn 3-0 og var þetta fimmti sigur liðsins í röð í belgísku b-deildinni. Lommel situr í fjórða sæti og er fimm stigum frá toppliðinu.

Hjörtur Hermannsson stóð svo vaktina í hjarta varnarinnar fyrir sína menn í Pisa. Liðið lagði Brescia og hélt Hjörtur hreinu en leikurinn endaði 3-0. Pisa er í fimmta sæti Serie B og eru 10 stigum frá toppsætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×