Handbolti

Amma Bjarka Más meðal Íslendinga í ótrúlegri stemningu í Kristianstad

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslendingarnir eru í miklu stuði í Kristianstad.
Íslendingarnir eru í miklu stuði í Kristianstad. Vísir/Vilhelm

Það var gríðarleg stemning hjá stuðningsfólki strákanna okkar í Kristianstad en Henry Birgir Gunnarsson var á staðnum í beinni útsendingu á Vísi.

Það var þétt setið í Fan Zone á fimmtudag og hefur Íslendingum í borginni fjölgað mikið síðan þá. Það er orðið uppselt á leikinn gegn Ungverjum í kvöld og Ísland verður svo sannarlega á heimavelli í þessum mikilvæga leik.

Henry Birgir Gunnarsson gekk um svæðið og ræddi við hressa Íslendinga sem eflaust mun öskra sig hása á leiknum í kvöld.

Innslagið sem var í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Ísland-Ungverjaland Fan Zone



Fleiri fréttir

Sjá meira


×