Sport

Dag­skráin í dag: Meistara­deild Evrópu og Sam­bands­deild Evrópu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Benfica er í góðum málum fyrir leik kvöldsins.
Benfica er í góðum málum fyrir leik kvöldsins. Sylvain Lefevre/Getty Images

Þægilegur þriðjudagur á rásum Stöðvar 2 Sport. Fótbolti og áskorendastig Stórmeistaramótsins í Counter-Strike:Global Offensive.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 19.35 hefst upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Klukkan 19.50 hefst útsending frá leik Benfica og Club Brugge. Heimamenn unnu 2-0 sigur í fyrri leiknum á Brugge því einstaklega erfitt verkefni fyrir höndum.

Klukkan 22.00 er komið að Meistaradeildarmörkunum þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins. Þar á meðal leik Chelsea og Borussia Dortmund. Lærisveinar Graham Potter í Chelsea þurfa tveggja marka sigur til að komast áfram.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.40 er leikur Lazio og AZ Alkmaar í Sambandsdeild Evrópu á dagskrá.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 19.15 er áskorendastig Stórmeistaramótsins í Counter-Strike:Global Offensive á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×