Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Matvælastofnunar. Þar kemur fram að ólöglegu aukaefnin séu E407 og E410.
Jelly Straws hafa notið mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni undanfarið en fyrirtækið Lagsmiður (fiska.is) flytur inn og selur vöruna.
Neytendum sem hafa keypt vöruna er ráðlagt að neyta hennar ekki, heldur farga eða skila.
Vörumerki: ABC
Vöruheiti: Jelly straws
Best fyrir: Allar lotur / dagsetningar
Nettómagn: 260g og 1000g
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Tsang Lin Industries Corp
Framleiðsluland: Taiwan
Innflytjandi og dreifing:
- Lagsmaður/Fiska.is Nýbýlavegi 6, Kópavogur
- Kína Panda, Hafnargötu 90, Keflavík
