Sport

Dag­skráin í dag: Úr­slita­keppni Subway deildar karla fer af stað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Valur mætir Stjörnunni í dag.
Valur mætir Stjörnunni í dag. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Úrslitakeppni Subway-deildar karla í körfubolta hefst með látum í kvöld.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.05 hefst útsending frá Hlíðarenda þar sem Íslandsmeistarar Vals taka á móti Stjörnunni í úrslitakeppni Subway-deildar karla. Valsmenn urðu deildarmeistarar á dögunum en Stjarnan endaði í 8. sæti deildarinnar.

Klukkan 20.05 færum við okkur yfir til Njarðvíkur þar sem heimamenn taka á móti Grindavík. Liðin enduðu í 2. og 7. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×