Sport

„Stuðningsmenn Grindavíkur kveiktu í mér“

Andri Már Eggertsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson gerði 21 stig í kvöld
Haukur Helgi Pálsson gerði 21 stig í kvöld Vísir/Hulda Margrét

Njarðvík hafði betur gegn Grindavík 86-94. Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, gerði síðustu sjö stig Njarðvíkur og kláraði leikinn. Haukur var brattur eftir leik og sagði að stuðningsmenn Grindavíkur hafi kveikt í sér.

„Ég var ánægður með hugarfarið hjá okkur þar sem við héldum áfram. Þeir komu til baka og gerðu mjög vel og hittu úr stórum skotum eins og Grindavík gerir en við létum það ekki brjóta okkur,“ sagði Haukur Helgi Pálsson eftir leik.

Haukur var nokkuð sáttur með fyrri hálfleik þar sem Njarðvík var fimm stigum yfir. 

„Mér fannst fyrri hálfleikur þokkalegur. Við vorum flatir á tímabili en þeir gerðu vel í að hægja á okkur en heilt yfir var fyrri hálfleikur þokkalegur.“

Haukur Helgi Pálsson setti niður stór skot undir lokin og kláraði Grindavík. Haukur gerði síðustu sjö stig Njarðvíkur og þakkaði stuðningsmönnum Grindavíkur fyrir að hafa kveikt í sér.

„Mér fannst ég skulda í þessu leik frekar en síðasta leik. Ég var búinn að vera að hitta illa en stuðningsmenn Grindavíkur kveiktu í mér þar sem þeir voru að segja að ég væri búinn og ætti að halda áfram að skjóta. Ég hélt því áfram að skjóta og svona á þetta að vera.“

Njarðvík þarf að vinna einn leik í viðbót til að fara áfram í undanúrslit og Haukur ætlaði að fara yfir þennan leik og skoða hvað þarf að bæta.

„Við þurfum að skoða þennan leik og sjá betur hvað við vorum að gera vel og illa. Við munum kryfja þennan leik og síðan tekur við hörkuleikur og við verðum að halda áfram,“ sagði Haukur Helgi Pálsson að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×