Enski boltinn

Eigandi Chelsea húðskammaði leikmennina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Todd Boehly lét óánægju sína í ljós eftir tap Chelsea fyrir Brighton.
Todd Boehly lét óánægju sína í ljós eftir tap Chelsea fyrir Brighton. getty/Visionhaus

Todd Boehly, eigandi Chelsea, lét leikmenn liðsins heyra það eftir tapið fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Chelsea hefur nú tapað öllum þremur leikjum sínum eftir að Frank Lampard tók við liðinu út tímabilið. Chelsea er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og svo gott sem úr leik í Meistaradeild Evrópu.

Boehly, sem eignaðist Chelsea fyrir ári, var langt frá því að vera sáttur eftir tapið fyrir Brighton. Hann fór niður í búningsklefa Chelsea ásamt meðeigendum sínum, Behdad Eghbali og Hansjorg Wyss, og þrumaði yfir leikmönnum liðsins eftir að Lampard hafði lokið sér af.

Meðal þess sem Boehly sagði við leikmennina var að frammistaða þeirra hefði verið vandræðaleg, þeir ekki staðið undir væntingum og minnti þá á að hann hefði eytt sex hundruð milljónum punda til að búa til vinningslið.

Næsti leikur Chelsea er gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Madrídingar unnu fyrri leikinn á sínum heimavelli, 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×