Í upphafi árs greindi Farah, sem unnið hefur til fjölda verðlauna á sínum ferli, frá því að hann búist við því að árið 2023 verði hans síðasta ár sem atvinnu hlaupari.
Komandi London maraþon verði sömuleiðis síðasta maraþonið hans á ferlinum.
„Þetta verður tilfinningaþrungið fyrir mig,“ sagði Farah í samtali við BBC. „Eftir hlaup munu tár fara að falla.“
Farah telur að stuðningurinn, sem hann fær alltaf á heimavelli í London, muni á endanum ná til sín. Hann ætlar hins vegar að gera sitt besta til þess að halda einbeitingu á hlaupinu sjálfu.
London maraþonið fer fram á sunnudaginn næstkomandi. Farah var ekki á meðal keppenda í maraþoninu í fyrra en þá var hann að jafna sig eftir aðgerð á mjöðm.
Takist honum að klára komandi maraþon verður það í fyrsta skipti síðan árið 2019 sem honum tekst það. Meiðsli hafa aftrað hans virkni í hinum ýmsu hlaupum.
„Síðustu ár hafa klárlega verið erfið. Sem íþróttamaður vill maður sífellt vera að reyna á sig og gera sitt besta en líkami minn hefur ekki gert mér kleift að gera það, undanfarin tvö ár hafa verið erfið fyrir mig.“
Boðar táraflóð á tímamótum í London

Breski hlauparinn Mo Farah segir að komandi London maraþon á sunnudaginn næstkomandi verði síðasta maraþon sitt á hlaupaferlinum. Í viðtali við BBC segist hann búast við því að tár muni falla að maraþoninu loknu.
Tengdar fréttir

Mo Farah var seldur í mansal sem barn
Langhlauparinn Sir Mo Farah var seldur í mansal sem barn en hann kom til Bretlands frá Sómalíu þegar hann var einungis níu ára gamall. Hann var látinn gera húsverk hjá fjölskyldu í Bretlandi og fékk ekki að fara í skóla fyrstu þrjú árin.