Sport

Dag­skráin í dag: Sann­kölluð í­þrótta­veisla á boð­stólnum!

Aron Guðmundsson skrifar
Úrslitakeppni Subway deildar karla heldur áfram í kvöld
Úrslitakeppni Subway deildar karla heldur áfram í kvöld

Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem meðal annars verður boðið upp á einvígi Tindastóls og Njarðvíkur í úrslitakeppni Subway deildar karla, Reykjavíkurslag í Bestu deildinni, úrslitakeppni í Olís deild kvenna í handbolta sem og undanúrslit enska bikarsins.

Stöð 2 Sport

Einvígi Tindastóls og Njarðvíkur í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta heldur áfram í kvöld, klukkan 18:45 hefst bein útsending frá Sauðárkróki. 

Tindastólsmenn leiða einvígið 1-0 og geta komið sér í afar góða stöðu með sigri. Njarðvíkingar þurfa hins vegar að svara fyrir sig eftir dapra frammistöðu í fyrsta leik liðanna. 

Strax eftir leik hefst bein útsending frá Subway körfuböltakvöldi þar sem leikur Tindastóls og Njarðvíkur verður krufinn til mergjar. 

Stöð 2 Sport 2

Herlegheitin byrja á Stöð 2 Sport 2 klukkan 10:20 en þá hefst útsending frá leik Empoli og Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 

Strax á eftir þeim leik hefst útsending frá leik Monza og Fiorentina í sömu deild, nánar tiltekið klukkan 12:50.

Klukkan 15:15 hefst útsending frá undanúrslitaleik Brighton og Manchester United í enska bikarnum í knattspyrnu. Sigurlið leiksins mætir Manchester City í úrslitaleiknum. Strax eftir þann leik hefst uppgjör á leiknum. 

Síðasta útsending dagsins á Stöð 2 Sport 2 veðrur frá stórleik Juventus og Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hún hefst klukkan 18:35.

Stöð 2 Sport 3 

Klukkan 15:50 hefst útsending frá leik AC Milan og Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og klukkan 19:30 tekur við útsending frá úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta þar sem Golden State Warriors tekur á móti Sacramento Kings. 

Stöð 2 Sport 4

Bein útsending frá The Chevron mótinu á LPGA mótaröðinni í golfi hefst klukkan 18:00 og stendur hún yfir fram eftir kvöldi.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 15:50 hefst útsending frá einvígi Stjörnunnar og KA/Þór í úrslitakeppni Olís deildar kvenna í handbolta. Að leik loknum tekur Seinni bylgjan við og fer yfir allt það helsta úr leiknum.

Þá verður á dagskrá sannkallaður Reykjavíkurslagur klukkan 19:00 þegar að erkifjendurnir í Fram og Val mætast í Bestu deild karla í knattspyrnu. Að leik loknum taka síðan við Bestu tilþrifin. 

Bestu deildar stöðvar

Á Bestu deildar stöðinni klukkan 15:50 hefst útsending frá leik ÍBV og Breiðabliks í Bestu deild karla og á sama tíma á Bestu deild 2 stöðinni hefst útsending frá leik KA og Keflavík. 

Stöð 2 ESPORT

Klukkan 14:00 hefst útsending frá eMeistaradeild Evrópu og klukkan 21:00




Fleiri fréttir

Sjá meira


×