Innlent

Hrækti á lög­­reglu­mann við hand­töku

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Lögregla handtók manninn og vistaði í fangageymslu.
Lögregla handtók manninn og vistaði í fangageymslu. Vísir/Vilhelm

Kallað var á lögreglu vegna manns í annarlegu ástandi á hóteli í miðborginni í dag. Þegar lögregla kom á vettvang hrækti hann á lögreglumann.

Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem fjallað er um verkefni dagsins í dag.

Í sama hverfi, 101, var tilkynnt um innbrot í skóla. Þá barst lögreglu einnig tilkynning um brotna rúðu í fyrirtæki í miðborginni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×