Eins og nafnið gefur til kynna er mótið opið þeim sem verða 50 ára á árinu og eldri og er boðið upp á fjölda keppnisgreina eins og golf, körfubolta, bridds, götuhlaup, hjólreiðar, stígvélakast og sund.
Ein þeirra sem tekur þátt í ár og um leið í fyrsta skiptið er Ingibjörg Hinriksdóttir sem keppir fyrir Breiðablik/UMSK. „Ég og Elín Jóhannesdóttir, eiginkona mín, ætlum að keppa í golfi, pútti og svo höfum við stofnað púttlið ásamt Sigrúnu systur minni og Þóri Gíslasyni, eiginmanni hennar. Þær Elín og Sigrún verða líka í einstaklingskeppninni í golfi svo það má segja að það verði systraslagur á golfvellinum í Hólminum.“
Svo er til skoðunar að taka þátt í einhverri grein innan frjálsra íþrótta. „Þar mun líklega 100 metra hlaup verða fyrir valinu enda mjög stutt og ég sein að hlaupa. Sjáum til hvað verður.“

Skráningarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld, mánudaginn 19. júní. Hægt er að skrá sig til leiks á umfi.is en þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag. Því geta allir tekið þátt á sínum forsendum. Fimmtíu ára og eldri skrá sig á umfi.is og fá hvítt armband sem opnar þeim þátttökurétt í öllum greinum. 18+ geta keypt rautt armband í valdar greinar.

Er alæta á íþróttir
Ingibjörg var lítil íþróttakona á sínum yngri árum að eigin sögn en hóf að spila golf fyrir tíu árum síðan. „Mitt helsta afrek fram til þess tíma var að ná í gullverðlaun í kúluvarpi á íþróttahátíð MK 1981! Svo var ég vissulega í hópi nokkurra stúlkna sem tóku knattspyrnudómarapróf 1980. Ég var knattspyrnudómari í nokkur ár eftir það og þakka fyrir að á þeim tíma voru engir samfélagsmiðlar til. Einnig má nefna að ég sat í stjórn KSÍ í átta ár.“

Þótt landsmótið næstu helgi sé hennar fyrsta sem þátttakandi hefur hún sótt fyrri mót sem áhorfandi. „Fyrsta landsmótið sem ég var áhorfandi að var árið 1981. Þá brunaði ég norður til Akureyrar til að fylgjast með vinkonum mínum taka þátt. Síðan var ég áhorfandi á Landsmótinu á Sauðárkróki þar sem tvær systur mínar tóku þátt í því að leggja á borð og baka pönnukökur en þær og unnu að sjálfsögðu til verðlauna í báðum greinum. Einnig má nefna að ég var einu sinni dómari í pönnukökubakstri þegar landsmót UMFÍ var haldið í Kópavogi.“
Þrátt fyrir að hennar fyrsta landsmót sem keppandi sé fram undan hefur hún fylgst með mótunum gegnum árin. „Sem alæta á íþróttir hef fylgst vel með landsmótunum frá því ég man eftir mér og gleðst sérstaklega yfir góðum árangri héraðssambandsins míns sem er UMSK.“

Ingibjörg er sjálf 59 ára gömul og segir alhliða hreyfingu skipta mjög miklu máli, ekki bara fyrir fólk á hennar aldri heldur fyrir alla aldurshópa. „Ég er sjálf ekki of dugleg að hreyfa mig en á vorin þegar ég kemst út á golfvöll finn ég hvað andinn lyftist og þrekið eykst. Við megum ekki gleyma því að þó flestir stundi íþróttir til að komast í betra líkamlegt form þá skiptir andlega hliðin ekki minna máli. Það á ekki síst við þegar komið er yfir miðjan aldur. Þá skiptir hver einasta mínúta af hreyfingu máli, þó það sé ekki nema fimm mínútur á dag af röskri hreyfingu.“
Hún er spennt fyrir næstu helgi og vonast til þess að það verði fjölmennt í Stykkishólm meðan mótið stendur yfir. „Ég hvet alla jafnaldra mína til að skrá sig á UMFÍ landsmót 50+ og taka þátt, við höfum svo sannarlega gott og gaman að því.“
