Slysið átti sér stað í gær þegar Ólafur var ásamt fleirum við smölun í klettinum. Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum sagði í samtali við Vísi í gær að tildrög slyssins væru til rannsóknar.
Guðjón fer fögrum orðum um föður sinn í samtali við Vísi. „Hann var góður maður, fjölskyldumaður. Mikill Vestmannaeyingur sem vildi hvergi annars staðar búa.“ Hann segir Ólaf hafa verið vel liðinn og þægilegan í nærveru.
Ólafur lætur eftir sig eiginkonu og fimm uppkomin börn.
Guðjón minntist föður síns í Facebook færslu í dag. Þar segir hann frá aðdraganda slyssins og síðustu orðum föður síns við hann. „Þetta var harmleikur og engum að kenna,“ segir Guðjón í færslunni.
„Pabbi elskaði sjóinn og úteyjalífið og hann fékk að kveðja þar. En það er sárt að kveðja svo skyndilega. Blessuð sé minning pabba.“