Sport

Dag­skráin í dag: Evrópu­kvöld á Kópa­vogs­velli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Breiðablik tekur á móti FCK í kvöld.
Breiðablik tekur á móti FCK í kvöld. Vísir/Diego

Fyrri leikur Breiðabliks og FC Kaupmannahafnar í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Um er að ræða leik milli ríkjandi Íslands- og Danmerkurmeistara. Uppselt er á leikinn og má búast við miklu fjöri. Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson eru á mála hjá danska liðinu.

Orri Steinn er sonur Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks.

Leikurinn hefst 19.15 en útsending Stöðvar 2 Sport hefst 18.45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×