Nýju MILLET vörurnar hafa slegið í gegn Hlaupár 6. október 2023 14:21 Franska vörumerkið MILLET var stofnað árið 1921 og er í dag þekkt og vinsælt fyrir útivistar- og lífstílsfatnað. Mörgum finnst skemmtilegt að kíkja í útivistar- og íþróttaverslunina Hlaupár í Fákafeni þessa dagana en verslunin er full af nýjum og fallegum vörum frá franska vörumerkinu MILLET.
Margir eru þar í mikilli nostalgíu enda var að koma ný sending af MILLET dúnúlpum úr svokallaðri HERITAGE línu sem þýðir að þær eru í svipuðu útliti og fyrir um 30 árum þegar MILLET var upp á sitt besta hér á landi. „Enginn var maður með mönnum á níunda áratug síðustu aldar nema að eiga MILLET úlpu,“ segir Þórdís Wathne sem er eigandi verslunarinnar. „Þegar fólk, sem var unglingar á þessum tíma, kemur í búðina okkar byrjar það yfirleitt á því að segja mér hvort það hafi átt MILLET úlpu eða ekki. Margir eru því annað hvort að endurnýja úlpuna sína eða láta langþráðan draum rætast um að eignast sína fyrstu MILLET úlpu. Það er líka skemmtilegt að sjá að unglingarnir eru farnir að streyma inn og fá sér úlpur, flíspeysur og hettupeysur frá MILLET enda eru flestir ánægðir með gæðin, verðið og útlitið.“ Millet ævintýrið hófst árið 1921 og hefur allt frá því verið vinsælt og rótgróið útivistarmerki. Í dag er það ekki síður þekkt sem lífstílsfatnaður. Krulluflísið er mjög vinsælt Það eru ekki bara úlpur frá MILLET sem njóta vinsælda, flíspeysurnar hafa líka fengið góðar viðtökur. „Krulluflísið er mjög vinsælt hjá okkur en það flísefni er hlýtt, þykkt og „flöffí“ en andar samt vel. Krulluflísið er mjög vinsælt sem hálfgerður jakki og svo sem vesti. Við vorum að fá mikið af flottum litum núna í haust en þessar flíkur eru mjög vinsælar á meðal fullorðinna, unglinga og krakka. Stærðirnar eru alveg niður í XS svo krakkar niður í 10 ára hafa verið að koma til okkar.“ Krulluflísefnið er hlýtt, þykkt og „flöffí“ en andar samt vel. Meðal annarra helstu vetrarvara sem Hlaupár býður upp á nefnir Þórdís Trilogy úlpuna frá MILLET. „Við köllum hana svefnpokaúlpuna enda er hún svakalega hlý. Þetta er næsta úlpa við Everest úlpuna sem MILLET framleiðir en í henni toppa margir Everest farar tindinn fræga. Hún er með alveg sérstaklega „djúsí“ hettu og kraga. Þetta er geggjuð úlpa til að fara í út á köldum morgnum.“ Trilogy úlpan frá MILLET er með alveg sérstaklega „djúsí“ hettu og kraga. Geggjuð úlpa fyrir kalda daga. Stöðugt rennsli af fólki allan daginn Hlaupár er nýleg verslun en hún sérhæfir sig í fatnaði og búnaði fyrir hlaupara, göngufólk og annað útivistarfólk. „Við vorum áður í litlu rými í Rjúpnasölum í Kópavogi áður en við opnuðum í Fákafeni 11 fyrir rúmu ári síðan, þar sem Herrafataverslun Birgis var áður.“ Þessa dagana er Hlaupár í Fákafeni full af nýjum og fallegum vörum frá franska vörumerkinu MILLET. Hún segir verslunina hafa gangið vel og stöðugt rennsli sé þar inn af fólki yfir daginn. „Það er líka gott aðgengi að búðinni og nóg af bílastæðum. MILLET vörumerkið er mjög vinsælt auk þess sem skórnir okkar eru líka mjög vinsælir. Hingað kemur fólk til að kaupa HOKA skó, bæði fyrir göngur og hlaup, enda eru þeir margrómaðir fyrir góða dempun og mýkt. Eins eru ON skórnir mjög vinsælir og svo skórnir Brooks, Scarpa, og ASICS.“ Nánari upplýsingar á hlaupar.is.
Hlaup Heilsa Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ Sjá meira