Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra hófust um 10:30 í dag. Til svara voru mætt þau Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.
Það vakti mikla athygli þegar Bjarni boðaði til blaðamannafundar á þriðjudagsmorgun og tilkynnti um þá ákvörðun sína að hann myndi stíga til hliðar. Var það í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis sem taldi Bjarna vanhæfan til að hafa yfirumsjá má sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Var það eftir að í ljós kom að faðir hans, Benedikt Sveinsson, var meðal kaupenda.
Bjarni sagðist ósammála forsendum umboðsmanns en sagði að hann virti álitið, Sjálfstæðisflokkurinn virti stofnanir ríkisins. Bjarni hlaut lof fyrir framgöngu sína en þegar spurðist að hann ætlaði líklega að hafa stólaskipti fór fljótlega að falla á engilinn að minnsta kosti í huga stjórnarandstöðuþingmanna.
Líklega að fara í utanríkismálin
Ljóst er að þungt hljóðið var í stjórnarandstöðunni. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn hóf leikinn og sagði að landsmenn hafi fylgst með afsögn Bjarna en svo hafi fljótlega komið í ljós að ekki var um neina afsögn að ræða heldur biði hans annar ráðherrastóll. „Sólarhringsauðmýktinni var lokið,“ sagði Þorbjörg Sigríður: Lærdómurinn ætlaði að verða sá að fjármálaráðherra ætlaði bara að verða utanríkisráðherra.
Og síðan stigu þeir hver af öðrum upp í ræðupúltið og lýstu yfir furðu sinni á stöðu mála. Björn Leví Gunnarsson sagði að þrír ráðherrar ættu að sitja fyrir svörum en hann sæi bara tvo. Birgir Ármannsson forseti Alþings áréttaði að þrír ráðherrar væru mættir.
Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins sagði ráðherra hafa ákveðið að axla ábyrgð en svo tæki ráðherrakapall við. „Hann væri maður meiri ef hann axlaði ábyrgð og stigi skrefið til fulls“.
Andrés Ingi Jónsson Pírötum hafði það til marks um verkleysi ríkisstjórnarinnar að hversu langan tíma það tæki að fylla sæti fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni á að vera hættur
Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki virtist í essinu sínu og sagði að þeim í Sjálfstæðisflokknum, „og ég held ríkisstjórnarflokkunum, líður ágætlega þessa dagana.“ Jón sagði þá sátta við það hvernig Bjarni hafi brugðist við áliti sem þó væri umdeilanlegt „en það er með ólíkindum að fylgjast með vanlíðan stjórnarandstöðunnar í þessu máli og ber þess merki hversu grunnur málflutningur hennar er. Hann sagði að það verði gerðar breytingar í ríkisstjórninni, það liggur fyrir. En þeir vandi skrefið í því sem öðru sem þeir gera.
Halldóra Mogensen Pírötum sagði það fyrir öllu að Sjálfstæðismönnum liði vel. Hún sagði að henni liði ekki illa, þetta væri bara svo vandræðalegt hversu grunn pólitík Sjálfstæðisflokksins væri. „Um hvað á ég að spyrja fjármálaráðherra? Hann á að vera hættur, af hverju er hann hérna? Hverju á hann að svara?“ Halldóra hafði þetta til marks um óheiðarleika Sjálfstæðismanna sem svo græfi undan lýðræðinu.
Og þannig gekk karp um það hvað Bjarni væri að gera þarna sem fjármálaráðherra lengi vel. Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki sagði umræðuna ótrúlega. Hér er einstaklingur sem sé enn að sinna starfi sínu og eðilegt að hann sé til staðar og standi fyrir svörum. „Stjórnarandstaðan er svekkt þegar hún sér hversu sterkum fótum ríkisstjórn stendur.“