Sagði Albert uppgötvun tímabilsins og kallaði hann hinn íslenska Dybala Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. nóvember 2023 11:31 Ekki leiðum að líkjast fyrir Albert Guðmundsson. vísir/getty Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur og fékk skemmtilegt hrós í vinsælu hlaðvarpi.
Albert skoraði sigurmark Genoa gegn Reggiana í ítölsku bikarkeppninni í gær. Þetta var annar leikurinn í röð sem hann skorar í en hann gerði eina mark leiksins þegar Genoa sigraði Salernitana í ítölsku úrvalsdeildinni á föstudaginn. Fjallað var um leik Genoa og Salernitana í ítalskri yfirferð í hlaðvarpinu vinsæla The Totally Football Show. James Horncastle, sérfræðingur þáttarins um ítalska boltans, sagði að Genoa hefði gengið betur en flesta hefði órað fyrir á tímabilinu og frammistaða Alberts ætti stóran þátt í því. Horncastle sagði að Albert væri uppgötvun tímabilsins ásamt Leonardo Pavoletti, leikmanni Cagliari, og kallaði hann hinn íslenska Paulo Dybala. Sá hefur verið í hópi bestu leikmanna ítölsku úrvalsdeildarinnar undanfarinn áratug eða svo, fyrst með Palermo, svo Juventus og loks Roma. Þá varð Dybala heimsmeistari með Argentínu í fyrra. Albert hefur skorað sex mörk í tólf leikjum í deild og bikar á tímabilinu og leikið sérlega vel. Genoa er í 14. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og komið í sextán liða úrslit bikarkeppninnar þar sem liðið mætir Lazio.
Ítalski boltinn Mest lesið Beckham: Hvernig voga þeir sér að segja þetta um Viktoríu mína Fótbolti Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Handbolti Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Handbolti Uppgjör: Stjarnan - ÍR 87-89 | Háspenna þegar ÍR klóraði í bakkann Körfubolti Olga tekur slaginn við Willum um stól forseta ÍSÍ Sport Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool Enski boltinn Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað Íslenski boltinn „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Enski boltinn Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tveir létust fyrir fótboltaleik í Síle Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld Uppgjörið: Breiðablik - Valur 0-1 | Valskonur meistarar meistaranna Grealish og Foden líður ekki vel Sævar Atli með fyrsta markið sitt á árinu 2025 Postecoglou: Það er leki í félaginu Gat farið hvert sem er en valdi að vera hjá okkur Suður-Ameríka vill 64 lið á HM 2030 svo enginn verði útundan Blikum spáð öðrum titli en stutt stopp hjá nýliðunum Fjögur prósent eru bara í fótbolta og langflestar vilja VAR og gervigras Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Besta-spáin 2025: Sama húsnæði, sama starfsemi „Stöð 2 Sport er enski boltinn“ Besta-spáin 2025: Sóknarhugur á Samsung Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Sorg og óvissa en ljós við enda ganganna Cantona telur Ratcliffe vera að eyðileggja Manchester United Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool Markvörðurinn skoraði með hjólhestaspyrnu á síðustu stundu Beckham: Hvernig voga þeir sér að segja þetta um Viktoríu mína Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Markvörður Frankfurt átti stórleik á móti Tottenham Onana gaf tvö mörk og United missti af sigri í blálokin Albert hvíldur þegar Fiorentina vann í Slóveníu Leo Beenhakker látinn Strákarnir hans Freys unnu aftur og nú í Íslendingaslag Bodö/Glimt með sögulegt takmark í augsýn Chelsea afgreiddi einvígið í fyrri leiknum í Póllandi Sjá meira