Lífið samstarf

Bein út­sending - Höfundar lesa í Hannesarholti

Forlagið
Upplestrarkvöld Forlagsins í Hannesarholti eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks
Upplestrarkvöld Forlagsins í Hannesarholti eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks

Í kvöld klukkan átta fer fram Bókakonfekt Forlagsins í Hannesarholti, Grundarstíg 10. Þar troða höfundar Forlagsins upp og kynna bækur sínar fyrir gestum, spjalla um þær og lesa upp úr þeim. Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft.

Bryddað verður upp á þeirri nýjung í ár að streyma beint frá Bókakonfektinu og er hægt að horfa á útsendinguna hér fyrir neðan, útsending hefst klukkan 20:

Eftirfarandi höfundar munu lesa upp í kvöld:

  • Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir - Mömmuskipti
  • Jón Atli Jónasson - Eitur
  • Eiríkur Örn Norðdahl - Náttúrulögmálin
  • Gunnar Helgason - Bannað að drepa
  • Björk Jakobsdóttir - Eldur
  • Steinunn Sigurðardóttir - Ból (Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir les)
  • Þröstur Ólafsson - Horfinn heimur
  • Melkorka Ólafsdóttir og Hlíf Una Bárudóttir - Flagsól
  • Guðbergur Bergsson - Dauði Francos (Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson les)

Léttar veitingar í boði fyrir þá sem mæta á staðinn. Bækur höfunda verða seldar á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.