Loksins getur öll fjölskyldan notið Skopp saman Skopp 15. nóvember 2023 13:23 Með tilkomu Barnaskopps, sem er ætlað börnum á aldrinum 0-4 ára, getur fjölskyldan nú mætt í Skopp með börn á dreifðum aldri. Nýtt trampólínsvæði opnaði nýlega fyrir yngstu börnin í Skopp í Kópavogi þar sem öll fjölskyldan getur nú skoppað saman.
Trampólíngarðurinn Skopp á Dalvegi hefur nú tekið í notkun glænýtt og spennandi trampólínsvæði ætlað yngstu gestum garðsins. Trampólínsvæðið, sem hefur fengið nafnið Barnaskopp, er ætlað börnum á aldrinum 0 - 4 ára. „Við erum virkilega glöð yfir því að geta loksins mætt þörfum fjölskyldna með börn á dreifðum aldri. Nýja trampólínsvæðið er virkilega skemmtilegt og er frá sama framleiðanda og trampólínin sem fyrir eru í garðinum,“ segir Þórey Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Skopp. Börn á aldrinum 0-4 ára skemmta sér vel í Barnaskoppi. Öryggi ofar öllu Rekstraraðilar Skopp á Dalvegi setja öryggi viðskiptavina í algjöran forgang. Á síðasta ári var aldurstakmarkinu í garðinn breytt á þann veg að aðgengi yngri barna var takmarkað við sérstaka krakkatíma. Var sú ákvörðun tekin til þess að lágmarka hættuna á óhöppum og hámarka öryggi allra viðskiptavina. Markmiðið var að koma í veg fyrir að yngri börn væru að skoppa innan um eldri og stærri börn. „Um leið og við breyttum aldurstakmarkinu settum við af stað vinnu við að útfæra nýtt trampólínsvæði fyrir yngri börnin af því að við vissum að þessi breyting hefði í för með sér skerðingu á notkunarmöguleikum garðsins fyrir fjölskyldur með börn á dreifðum aldri. Það gleður okkur því mikið að geta nú boðið krökkum á öllum aldri að Skoppa hjá okkur og viljum sérstaklega bjóða þessar fjölskyldur velkomnar til okkar aftur,“ segir Þórey. Stöðugar endurbætur og nýjungar Frá því að nýir eigendur tóku við rekstrinum í september 2021 hefur verið unnið stöðugt að því að gera garðinn bæði öruggari og skemmtilegri. Nýr klifurveggur og uppblásinn fótboltavöllur eru á meðal nýjunga sem njóta mikilla vinsælda. Nýjasta viðbótin er svo nýja trampólínsvæðið fyrir yngri börnin, Barnaskopp. „Við erum hvergi nærri hætt hér í Skopp. Á næsta ári ætlum við að ráðast í viðamiklar breytingar á móttökusvæðinu og stórbæta alla biðaðstöðu og framboð og úrval veitinga. Eins fá afmælisherbergin á annarri hæðinni alveg nýja ásýnd,“ bætir Þórey við að lokum. Bókaðu Skopp á skoppisland.is.
Fjölskyldumál Hreyfum okkur saman Íþróttir barna Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Anna Lilja nældi sér í fjárfesti Lífið Emil og Ása keyptu 330 milljóna einbýli í Fossvogi Lífið Glæsihöll Esterar í Pelsinum til sölu á 470 milljónir Lífið Engin tilviljun að kaffið bragðaðist „eins og skítur“ Lífið Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið Stikla fyrir nýja íslenska grínþætti: „Þetta er ógeðslega fyndið“ Lífið Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Lífið Íslenskar stjörnur flykkjast í sólina Lífið Fleiri fréttir Einn glæsilegasti 9 holu völlur landsins Myndaveisla frá Götubitahátíðinni þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin á Götubitahátíðinni Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Sjá meira