Rændi Manzano Úkraínumenn víti og EM-sætinu? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. nóvember 2023 11:27 Átti Úkraína að fá vítaspyrnu þarna? stöð 2 sport Úkraínumenn töldu sig svikna um vítaspyrnu í uppbótartíma gegn Ítalíu í hreinum úrslitaleik um sæti á EM í Þýskalandi á næsta ári.
Leikurinn endaði með markalausu jafntefli sem dugði Ítölum til að komast á EM. Úkraínumenn þurfa hins vegar að fara í umspil um sæti á EM. Það hefði getað farið á hinn veginn ef Úkraína hefði fengið víti í uppbótartíma þegar Mykhailo Mudryk féll í vítateignum eftir baráttu við Bryan Cristante. Dómari leiksins, Jesús Gil Manzano, dæmdi ekki neitt og dómnum var ekki snúið við eftir skoðun á myndbandi. Manzano var hins vegar ekki kallaður út að hliðarlínu til að kíkja á atvikið. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Úkraínumenn vilja fá víti Serhiy Rebrov, þjálfari Úkraínu, var skiljanlega svekktur með að hafa ekki fengið víti þegar Cristante virtist brjóta á Mudryk. „Mér fannst þetta vera víti en við erum með dómara og VAR. Við ákveðum þetta ekki. Dómarinn var ekki kallaður til að skoða atvikið,“ sagði Rebrov. Þetta atvik kemur nokkrum dögum eftir að Aleksander Ceferin sagði að það yrði hræðilegt ef Ítalía kæmist ekki á EM. Rebrov og aðrir Úkraínumenn voru afar ósáttir við þau ummæli forsetans.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Sjá meira