Erlent

Japanar vilja kyrr­setja her­flug­vélar eftir slys

Samúel Karl Ólason skrifar
Brak úr flugvélinni sem brotlenti hefur fundist í sjónum en einungis einn af þeim átta sem voru um borð.
Brak úr flugvélinni sem brotlenti hefur fundist í sjónum en einungis einn af þeim átta sem voru um borð. AP/Strandgæsla Japan

Yfirvöld í Japan hafa beðið Bandaríkjamenn um að stöðva notkun V-22 Osprey flugvéla nærri eyríkinu um tíma. Það er eftir að ein slík flugvél féll í hafið undan ströndum Japan í gær, miðvikudag.

Japanar vilja að öryggi vélanna sé tryggt áður en þeim sé flogið aftur en allar fjórtán flugvélarnar í eigu varnarliðs Japans hafa verið kyrrsettar í bili.

V-22 Osprey er nokkurs konar blendingur þyrlu og hefðbundinnar flugvélar. Hún tekur á loft eins og þyrla en í kjölfarið er hreyflum hennar snúið fram á við og henni flogið eins og flugvél.

Tilefni þess að flugvélin brotlenti í gær er enn til rannsóknar og er enn verið að leita að sjö sem voru um borð. Einn fannst í gær. Fjölmiðlar ytra hafa haft eftir vitnum að vinstri hreyfill flugvélarinnar hafi logað þegar hún hrapaði í hafið.

Leit stendur enn yfir í sjónum við Japan.AP/Kyodo News

Verið var að fljúga flugvélinni á æfingu en fyrst bárust fregnir af því að átta hefðu verið um borð. Það var svo lækkað í sex en hækkað aftur í átta.

Sjá einnig: Bandarísk herflugvél hrapaði í sjóinn við Japan

Slys á Osprey-flugvélum eru tiltölulega algeng en flugvélarnar voru fyrst teknar í notkun á tíunda áratug síðustu aldar. Þær eru í notkun hjá bandarískum landgönguliðum, sjóhernum og hjá flugher Bandaríkjanna.

Ein slík flugvél hrapaði í sjóinn undan ströndum Ástralíu í ágúst. Þá dóu þrír og fimm særðust alvarlega. Það var fimmta banvæna Osprey-slysið frá árinu 2012.

Bandaríkjamenn hafa verið að nota flugvélarnar við leitina að týndu hermönnunum en Minoru Kihara, varnarmálaráðherra Japans, sagði á þingi í morgun að minnst tuttugu V-22 Osprey flugvélum hefði verið lent eða þær tekið á loft við bandarískar herstöðvar í Japan frá því í gær, samkvæmt frétt Reuters.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×