Hin eina sanna Laufey skein skært á hátíðinni í hvítum galakjól frá hönnuðinum Rodarte. Súperstjarna með meiru.

Raunveruleikastjarnan og förðunarmógúllinn Kylie Jenner var meðal gesta ásamt sínum heittelskaða Timothée Chalamet, leikara. Þau eru líklega með frægustu pörum heims um þessar mundir og virtust ástfangin upp fyrir haus. Chalamet var tilnefndur til verðlauna fyrir hlutverk sitt sem Willy Wonka í kvikmyndinni Wonka.

Margot Robbie átti stórt ár 2023 og lék aðalhlutverkið í einni vinsælustu kvikmynd ársins, Barbie. Hún var tilnefnd sem besta leikkona í flokki söngleikja eða gamanmynda. Þótt hún hafi ekki farið heim með styttu var hún með best klæddu stjörnum kvöldsins í fatnaði sem dró innblástur sinn af Súperstjörnu Barbie, dúkku sem kom út árið 1977. Kjóllinn er hannaður af Giorgio Armani.

Tónlistarkonan Dua Lipa var tilnefnd fyrir lagið Dance The Night, þemalag Barbie myndarinnar. Hún klæddist stórglæsilegum síðkjól frá hátískumerkinu Schiaparelli, en tískuhúsið hefur haslað sér velli sem eitt það allra eftirsóttasta í dag.

Stórleikkonan Helen Mirren sveif um eins og fjólublár draumur á hátíðinni í sérsaumuðum síðkjól frá Dolce & Gabbana. 78 ára og fabjúlöss! Hún var tilnefnd sem besta leikkona í sjónvarpsþáttum í flokknum drama fyrir hlutverk sitt í 1923.

Lenny Kravitz er alltaf og undantekningalaust töff. Hann var tilnefndur fyrir besta frumsamda lagið, Road to Freedom úr Rustin, og rokkaði 70's jakkaföt frá breska hátískuhúsinu Alexander McQueen með örlítið bert á milli á hliðunum.

Breska bomban, leikkonan og töffarinn Florence Pugh skartaði stuttu hári og rauðum, örlítið gegnsæjum og glæsilegum Valentino síðkjól. Pugh fór með hlutverk í kvikmyndinni Oppenheimer en myndin hlaut flest verðlaun á hátíðinni í gær.

Enska stórleikkonan Carey Mulligan er með puttann á púlsinum í tískunni og klæddist svörtum og silfruðum galakjól úr vintage línu Schiaparelli. Mulligan var tilnefnd sem besta leikkona í dramamynd fyrir Maestro.

Lily Gladstone og Leonardo DiCaprio mættu í stíl stílhrein og flott í svörtu og hvítu. Gladstone hreppti styttu sem besta leikkona í dramamynd fyrir hlutverk sitt í Killers of the Flower Moon. DiCaprio var tilnefndur sem besti leikkari fyrir sömu kvikmynd.

Sögulega leikkonan Christina Ricci var tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki í sjónvarpi fyrir hlutverk sitt í Yellowjackets. Hún skein ansi skært í glitrandi hátískukjól frá tískuhúsinu Fendi.

Eins og frægt er biður söng- og leikkonan Jennifer Lopez fólk að blekkjast ekki á steinunum sem hún á. Hún var ljómandi og glæsileg í ljósbleikum Nicole + Felicia Couture síðkjól.

Leikkonan America Ferrera fór með hlutverk í hinni geysivinsælu Barbie mynd í fyrra og fór þar með eftirminnilega og valdeflandi ræðu sem veitti ýmsum áhorfendum femíniskan innblástur. Hún glitraði í gær í silfruðum síðkjól frá tískuhúsinu Dolce & Gabbana.

Fjölmiðlaofurstjarnan Oprah Winfrey mætti á hátíðina í fjólubláum pallíettukjól frá Louis Vuitton með fjólublá gleraugu í stíl. Fáguð, fjólublá, frábær og fabjúlöss.

Billie Eilish hlaut Golden Globe styttu fyrir lagið What Was I Made For sem hún samdi fyrir kvikmyndina Barbie. Eilish fer alltaf eigin leiðir í tískunni og hefur undanfarið leikið sér svolítið að skyrtu og jakka lúkkinu. Hún klæddist fatnaði frá tískuhúsinu Willy Chavarria.

Leikkonan Da'Vine Joy Randolph hlaut verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir kvikmyndina The Holdovers. Hún klæddist djúprauðum og hafmeyjulegum galakjól frá hönnuðinum Rodarte.

Leikkonan Hunter Schafer hefur vakið athygli fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsseríunni Euphoria. Hún fór sömuleiðis með hlutverk í nýjustu Hunger Games kvikmyndinni og virðist velgengni Schafer á stöðugri uppleið. Í gær klæddist hún glæsilegum ljósbleikum síðkjól frá hátískuhúsinu Prada.

Meryl Streep glitraði eins og gersemi sem henni einni er lagið í síðu pilsi og jakka við sem var sérhannað á hana af Valentino hönnuðinum Pierpaolo Piccioli. Hún rokkaði að sjálfsögðu svört sólgerlaugu við.

Tónlistardrottningin Taylor Swift var tilnefnd fyrir tónleikaferðalags kvikmyndina The Eras Tour í flokknum Besta kvikmyndaupplifunin og miðasala. Hún klæddist glæsilegum, glitrandi og grænum Gucci kjól en liturinn hefur verið mikið í tísku síðastliðin ár.

Elizabeth Debicki þótti einstaklega sannfærandi Díana prinsessa í síðustu seríu af The Crown og hreppti styttu fyrir hlutverkið í flokknum besta leikkona í aukahlutverki í sjónvarpi. Hún hefur ef til vill fundið á sér að kvöldið myndi fara vel þar sem hún skartaði gylltum Dior hátísku síðkjól sem passaði vel við styttuna.

Natalie Portman skein mögulega skærar en allar aðrar stjörnur í gær í silfruðum síðkjól sem var þakinn glitrandi steinum frá hátískuhúsinu Dior.

Leikkonan Brie Larson hefur ratað á marga lista yfir best klæddu stjörnur gærkvöldsins. Hún klæddist ljósfjólubláu listaverki frá Prada.

Kvikmyndin Saltburn hefur vakið mikla athygli að undanförnu en stjarna myndarinnar Barry Keoghan var ofurflottur í tauinu á Golden Globe í gær. Hann klæddist rauðum Louis Vuitton jakkafötum með sígildu Damier munstri tískuhússins. Þá var hann með rautt og gyllt skart við og eyrnalokka og hálsmen í stíl.
