Fresta gjaldtökunni umdeildu Árni Sæberg skrifar 17. janúar 2024 10:44 Sigrún Björk Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. Stöð 2 Stjórnendur og stjórn Isavia Innanlandsflugvalla hafa ákveðið að fresta gjaldtöku á bílastæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum þar til síðar á þessu ári.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Isavia. Þar segir að fyrirtækið muni í framhaldinu skoða þær efnislegu ábendingar sem hafa komið fram varðandi fyrirkomulag gjaldskrár. Í síðustu viku var greint frá áformum Isavia um að hefja gjaldtöku á bílastæðum við flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum og víðar. Meðal þeirra sem brugðust ókvæða við áformunum var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sem spurði einfaldlega: „Af hverju þarf stöðugt að reyna að gera lífið erfiðara og leiðinlegra í nafni einhvers konar nútímavæðingar?“ Nú hefur hlutafélagið opinbera dregið í land með gjaldtökuáformin. „Eftir samtal bæði við nærsamfélagið á Akureyri og Egilsstöðum og einnig við fulltrúa Innviðaráðuneytisins hefur verið samþykkt að hraða möguleikanum á því að hefja gjaldtöku á bílastæðunum við Reykjavíkurflugvöll þannig að hún geti hafist næsta vor. Því verður beðið með gjaldtöku á bílastæðunum á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli þar til á vordögum og innleiða gjaldtökuna á sama tíma á flugvöllunum þremur,“ segir í fréttatilkynningu þess efnis. Setja upp búnað þrátt fyrir óvissu um veru vallarins Í tilkynningu segir að stefnt sé að því að fara í gjaldtökuna í Reykjavík þó enn sé framtíð flugstöðvarinnar á Reykjavíkurflugvelli óráðin. Búnaður verði settur upp sem muni virka með sama hætti og sá sem verður rekinn á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Haft er eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia Innanlandsflugvalla, að eftir samtal við ráðuneytið og athugun á því hvort þetta væri möguleiki hafi niðurstaðan verið þessi. „Gjaldtaka á bílastæðum millilandavallanna er mikilvæg leið til tekjuöflunar fyrir uppbyggingu á bílastæðum við flugvellina nú þegar áherslan á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli er á millilandaflug og samkomulag um framhald á því verkefni í höfn. Í því sambandi er mikilvægt að tryggja sem best að farþegar geti gengið að lausum bílastæðum þegar þeirra er þörf.“ Bílar skildir eftir svo mánuðum skipti Of oft hafi bílum hefur verið lagt í stæði við vellina til lengri tíma, svo dögum, vikum eða jafnvel mánuðum skiptir. Í einstaka tilvikum, til dæmis þegar malbikunarvinna eigi sér stað, hafi verið flókið verkefni að hafa upp á og komast í samband við eigendur bílanna áður en þeir voru fjarlægðir. Með aukinni millilandaumferð aukist þörfin fyrir bílastæði. Framboð á þeim þurfi að vera tryggt og aðstaðan góð. Þar hjálpi gjaldtakan til við að bæta upplifun farþega af bílastæðunum. „Síðustu daga höfum við fengið þá spurningu hvort gjaldtakan sé lögmæt. Samkvæmt þjónustusamningi ríkisins við Isavia Innanlandsflugvelli um rekstur innanlandsflugvallanna fer Isavia Innanlandsflugvellir með umráð lóðanna sem um ræðir. Í samningnum er sérstök heimild til að afla tekna frá þriðja aðila vegna afnota af lóðunum. Umræða síðustu daga er afar mikilvæg og ég fagna því tækifæri að hafa geta farið yfir málið,“ er haft eftir Sigrúnu Björk.
Fréttir af flugi Bílar Akureyri Egilsstaðaflugvöllur Akureyrarflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Bílastæði Mest lesið Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Viðskipti erlent Fleiri fréttir Temu kaupin geti hæglega orðið að fíkn Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Orðrómur um Appelsín ósannur Bjórinn á rúmlega tvö þúsund krónur í erfiðum rekstri Íslenskt súkkulaðistykki ódýrara í Svíþjóð en á Íslandi Tælenskt hveiti úr umferð Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi „Við erum ekki að fara að vinna“ Ódýrara að velja erlenda gjaldmiðilinn í posum erlendis Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Búið að afvopna neytendur Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Sjá meira