McGuire átti að koma til Blackburn á láni frá MLS liðinu Orlando City.
Fyrir aðeins fimm dögum tilkynnti Orlando City að leikmaðurinn væri á leiðinni í sex mánaða lán til enska félagsins. Það stóð að því virtist ekkert í vegi fyrir að hann yrði liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Arnórs Sigurðssonar.
Enska deildin samþykkti hins vegar ekki skiptin þar sem hún var ekki búinn að fá allar nauðsynlegar upplýsingar áður en glugginn lokaði klukkan ellefu á fimmtudagskvöldið.
„Það var búið að ganga frá öllum pappírum fyrir klukkan tíu fimmtudaginn 1. febrúar en vegna mistaka þá fóru gögnin ekki rétta leið áður en glugginn lokaðist,“ sagði í yfirlýsingu frá Blackburn.
Club Statement - Duncan McGuire
— Blackburn Rovers (@Rovers) February 6, 2024
https://t.co/bHP1JeWs7N#Rovers pic.twitter.com/c1NdGLooXj
Blackburn er að reyna að koma félagsskiptunum í gegn með því að fá undanþágu hjá yfirstjórn ensku deildarkeppninnar.
„Lögmenn félagsins hafa tekið saman nauðsynlega pappíra og sent stjórn ensku deildarkeppninnar sem mun fara yfir málið fimmtudaginn 8. febrúar,“ sagði enn fremur í yfirlýsingunni.
McGuire skoraði fimmtán mörk fyrir Orlando á síðasta tímabili og mun haldi kyrru fyrir í Bretlandi þar til lokaniðurstaða fæst í málið. Fái skiptin ekki undanþágu þá mun hann snúa aftur til Bandaríkjanna og verða aftur leikmaður Orlando City.
Blackburn, sem varð enskur meistari 1995, er að reyna að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildinni þar sem félagið hefur ekki verið síðan 2012. Liðið er í átjánda sæti ensku B-deildarinnar og langt frá því markmiði.
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er eins og áður sagði leikmaður Blackburn og er með fimm mörk og eina stoðsendingu í 21 leik á tímabilinu.