Innlent

Útimarkaðurinn í Mosó hættir

Jakob Bjarnar skrifar
Myndir frá útimarkaðnum. Nonni segir að þetta hafi verið hálfgert lúxusvandamál, en það var til dæmis orðið erfitt með bílastæði við markaðinn. En þrjátíu ár er góð törn.
Myndir frá útimarkaðnum. Nonni segir að þetta hafi verið hálfgert lúxusvandamál, en það var til dæmis orðið erfitt með bílastæði við markaðinn. En þrjátíu ár er góð törn. aðsend

Ákveðið hefur verið að úti­mark­aði Mosskóga í Mosfellsdal, þar sem hægt hefur verið að kaupa varn­ing frá rækt­end­um og framleiðend­um í ná­grenn­inu, verði hætt nú í sumar.

Ljóst er að margir eiga eftir að sakna þess að geta ekki farið upp í Dal og keypt sér líf­rænt ræktað græn­meti og ber, heimagerð­ar sult­ur og mauk, nýbakað brauð, sil­ung frá Heiða­bæ og rós­ir frá Dals­garði. En þarna hefur verið opið á laug­ar­dög­um í júlí, ág­úst og fram í sept­em­ber frá kl. 10:00 – 15:00.

„Nú er hún Snorrabúð stekkur,“ segir Árni Páll Árnason fyrrverandi þingmaður með tárin í augunum. „Þetta hefur verið frábær vin og uppspretta skemmtilegra samkoma í áratugi. Takk fyrir úthaldið og skemmtunina.“ Og Egill Helgason segir þetta þungbært: „Sjónarsviptir. Takk fyrir frábært starf Nonni og co.“

Hugmynd frá Frakklandi sem svínvirkaði

Ástar og saknaðarkveðjunum rignir inn. Jón Jóhannsson, sem hefur verið potturinn og pannan í rekstrinum, segir það rétt. Markaðurinn hafi verið öðrum þræði samkvæmisstaður, þar sem fólk úr borginni kom, settist niður og fékk sér kaffi.

„Hittist þarna frekar en í götunni heima hjá sér. Ég skil þetta mjög vel en einhvern tíma verður maður að setja stopp á sjálfan.“

Nonni segir þrjátíu ár sæmilega törn en það sé ljóst að fólk vilji koma úr bænum og gera sér glaðan dag.aðsend

Jón, eða Nonni, segir að þau hafi verið þrjú sem byrjuðu með þetta fyrir einum þrjátíu árum. Hinir tveir voru í annarri vinnu og þetta dæmdist á hann, meira og minna.

„Ég tók þessa hugmynd með frá Frakklandi, hvort svona gæti gengið,“ segir Nonni og það var ekki að sökum að spyrja; það var eftirspurn.

„Og síðan eru þrjátíu ár liðin. Torgið farið að fúna og kominn tími til að endurbyggja það. Við ákváðum að þetta væri komið gott.“

Best að hætta á toppnum

Í byrjun var ekki mikið til að selja en fólk hópaðist að. En áhuginn var ótvíræður. Fólk vildi fara úr bænum og gera sér glaðan dag. Og kaupa beint af býli.

Troðið á markaðnum. Nú verður þetta fólk að leita eitthvað annað því búiið er að loka markaðinum vinsæla.aðsend

„Það tekur tíma að skipuleggja hverja helgi fyrir sig, þannig að það séu til vörur fyrir fólkið. Maður var í samstarfi við marga þó það sé alltaf einn sem haldi utan um hlutinn. Ég reiknaði með að fleiri myndu koma að en menn entust ekki lengi,“ segir Nonni og er þá að tala um aðra markaði. Hann segir góða hluti gerast hægt.

„Þetta hefur verið sæmileg törn. Svo erum við erum hér með tjaldsvæði og svo markaðinn líka. Þetta var orðin of mikil traffík.“

Nonni lýsir því að það hafi verið komið upp vandmál með bílastæði í afleggjaranum, fólk hefur verið að leggja meðfram götunni báðum megin og umferðateppur myndast. En nágrannar markaðsins eru Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og það þarf að vera gott aðgengi fyrir sjúkrabíla.

„Það er sem sagt eitt og annað sem kannski má segja að séu lúxusvandamál. En er ekki best að enda á toppnum?“ spyr Nonni og jú, ætli það ekki.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×