Um tvöhundruð bækur komnar út á árinu - sumarbókavikan hefst í dag FÍBÚT 3. júní 2024 10:18 Nýir titlar hlaupa á tugum í hverjum flokki og heildarfjöldi útgefinna bóka það sem af er ári nálgast annað hundraðið. Bókaunnendur eiga því gott sumar framundan. Sumarbókavikan hefst í dag, splunkunýtt átak Félags íslenskra bókaútgefenda til að efla sumarlestur Íslendinga. Rétt um tvöhundruð nýjar bækur hafa komið út það sem af er ári. „
Fjöldi nýrra bóka kom meira að segja okkur sem störfum í bókaútgáfu á óvart og ekki síður fjölbreytnin. Þetta eru nánast allt frumútgáfur, fyrir utan nokkrar kiljur vinsælla skáldverka sem komu út á síðasta ári, og í öllum flokkum,” segir Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félagsins íslenskra bókaútgefenda hvetur fólk til að setja sér lestrarmarkmið í sumar og tala um bækur hvenær sem tækifæri gefst.Vilhelm Á bokatidindi.is er verið að safna saman öllum bókum sem komu út 2024 og skipta þær tugum í flokkum barna- og unglingabóka, fræði- og handbóka, þýddra skáldverka og ljóða og íslenskra skáldverka og ljóða. Bókaunnendur eiga því heldur betur gott sumar í vændum og hvetur Heiðar Ingi fólk til þess að setja sér lestrarmarkmið og tala um bækur hvenær sem tækifæri gefst. Nýjar glæpasögur hlaupa á tugum í bókabúðum fyrir sumarið. „Nú er forsetakosningunum lokið og þá er upplagt að fara að tala um eitthvað annað, það skiptir máli að tala um bækur og halda bókum sérstaklega að börnum. Bækur eru falleg sumargjöf og það jafnast fátt á við að sitja úti í náttúrunni og lesa bók, það á varla við að lesa af tölvuskjá meðan fuglarnir syngja, ég sé það að minnsta kosti ekki fyrir mér." Það skiptir máli að halda bókum að börnum og tala um bækur við þau. Hvernig bækur lesum við á sumrin? Heiðar segir lesefnið gjarnan örlítið léttara en yfir vetrarmánuðina en ef litið er til þess hve breiddin er mikil í ár þá er hreint ekki bara afþreyingu að finna í nýjum útgáfum eins og glæpi, rómans eða afturhvarf til fortíðar heldur eru nýjar skáldsögur eftir nýja íslenska höfunda sem taka á samfélagsmálum fyrirferðarmiklar. Sem dæmi má nefna bókina Mennsku eftir leikarann Bjarna Snæbjörnsson og þá eru margar ljóðabækur á listanum, ljóðið lifir því enn þrátt fyrir spár um annað eða hvað? Nýjar frumútgáfur og þýdd ljóð eru virkilega spennandi á leslista sumarsins. „Dauði ljóðabóka og reyndar ýmissa tegunda bóka hefur verið spáð, oft. Til dæmis matreiðslubóka nú þegar hægt er að gúggla uppskriftir og afhverju þurfum við lífsstílsbækur þegar við höfum hlaðvörp og afþreyingarbókmenntir þegar við höfum sjónvarp? Einhvernvegin er það nú samt þannig bókin virðist vera ágætur miðill til að miðla þessu öllu og breiddin núna sýnir að bókin lifir góðu og blómlegu lífi. Bækur hafa alltaf gildi." Alvöru rómantík á alltaf við á björtum sumarkvöldum. Lífsstílsbækur, handbækur og fræðirit skipta einmitt tugum á útgáfulistanum og má þar til dæmis nefna bækur um ADHD, handbækur um heilsu og jóga. Áhugi á slíkum bókum er því síst á undanhaldi. Á sumrin gefst góður tími til að sökkva sér í áhugaverðar handbækur og fræðirit Bók í fríið hvert sem ferðinni er heitið Það er vel þekkt að kaupa bók á flugvellinum þegar við erum á leið í frí til útlanda og í flugvélum sést fólk oftar en ekki fletta brakandi nýrri bók. Það er líka oft skemmtilegt að detta niður á bók sem tengist staðnum sem á að heimsækja. En það þarf ekki að fara til útlanda til þess að tilefni skapist til að kaupa sér bók segir Heiðar Ingi. „Fólk skreppur bara út í næstu bókabúð núna og þá kemst það í allt þetta úrval af nýjum bókum."
Menning Bókaútgáfa Bókmenntir Ferðalög Mest lesið Íslendingur áberandi í bandarískri raunveruleikaseríu Lífið Gústi B fann ástina hjá Hafdísi Sól Lífið Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada Tíska og hönnun Frændsystkini á leið í lækninn: „Sá á fjölskyldugrúppunni að hann hafði líka komist inn“ Lífið Ragnheiður Gröndal er söluhæsti listamaður á tónlist.is frá upphafi Lífið Damon Younger og Ásdís hætt saman: „Það þarf enginn að efast um hvort ég elski hana“ Lífið Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Tónlist Undurfagurt og heillandi einbýli í Mosfellsbæ Lífið Gummi Emil grípur til sinna ráða eftir fangelsisdóm Lífið Lækkuðu hitastigið fyrir leðurklædda kvikmyndaáhugamenn Lífið Fleiri fréttir Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ „Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment“ Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur Mosfellsdalur tók vel á móti Bylgjulestinni LED ljósameðferðir: Nýjasta trendið í húðumhirðu „Viltu passa mig?“ Sniglar höfða til kærleikans í umferðinni Fjörið með Bylgjulestinni heldur áfram í Mosfellsbæ Gerðu upplifunina að EM í fótbolta skemmtilegri með Match Attax Á leið á landsleik í London í boði Netgíró Sígild hönnun frá Rosti verður 70 ára Frábær stemming hjá Bylgjulestinni í Eyjum um helgina Verum vakandi í umferðinni í sumar Pula í Króatíu er paradís heim að sækja Um tvöhundruð bækur komnar út á árinu - sumarbókavikan hefst í dag Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn Sjá meira