Fótbolti

Stefán Ingi á leið til Noregs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Stefán Ingi skoraði 10 mörk í 12 leikjum í Bestu deildinni á síðustu leiktíð. 
Stefán Ingi skoraði 10 mörk í 12 leikjum í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.  Vísir/Hulda Margrét

Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson er við það að ganga í raðir Sandefjord sem spilar í efstu deild Noregs. Hann hefur undanfarið ár leikið með Patro Eisden í Belgíu.

Stefán Ingi raðaði inn mörkum fyrir Breiðablik á síðustu leiktíð. Belgíska B-deildarliðið festi kaup á framherjanum um mitt sumar en hann er nú á faraldsfæti.

Samkvæmt Nettavisen hefur þessi 23 ára gamli framherji samið við Sandefjord og verður hann leikmaður liðsins áður en langt um líður.

Sandefjord situr í neðsta sæti norsku deildarinnar um þessar mundir með 13 stigi, stigi frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×