Innlent

Sprengja sprakk í Leifs­stöð: „Ein­hvers konar víti“

Árni Sæberg og Jón Ísak Ragnarsson skrifa
Sprengingin varð í brottfararsal flugvallarins.
Sprengingin varð í brottfararsal flugvallarins. Vísir/Vilhelm

Minniháttar sprenging varð á salerni í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á fjórða tímanum í dag. Einn starfsmaður flugstöðvarinnar hlaut minniháttar áverka en þurfti ekki að leita sér læknisaðstoðar.

Þetta staðfestir Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, í samtali við Vísi. Greint var frá málinu á mbl.is.

Uppfært 18:10

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að starfsmaður sem var við vinnu, hafi veitt litlum hlut athygli sem hann fjarlægði með töng. Við það hafi hluturinn sprungið, og starfsmaðurinn hlotið minniháttar meiðsli á fingrum.

Engar upplýsingar liggi fyrir hvorki um það hver hafi verið þarna að verki, né um tilganginn.

Vettvangsvinna sé enn í gangi og ljúki á næsta klukkutímanum.

Ekki alveg ljóst hvers konar sprengju er um að ræða

Bjarney segir að fyrstu fregnir af vettvangi hermi að um „einhvers konar víti“ hafi verið um að ræða. Víti eru heimatilbúnar sprengjur sem útbúnar eru úr flugeldum. Bjarney segir þó að það hafi ekki fengist staðfest um hvers konar sprengju hafi verið að ræða.

Lögregla hafi viðhaft töluvert viðbragð vegna málsins en búið sé að draga úr því. Sprengjusveit Ríkislögreglustjóra sé á vettvangi.

Skoða upptökur úr myndavélum

Nú sé aðeins unnið að því að tryggja öryggi en rannsókn á málinu sé ekki hafin. Fljótlega verði farið í að skoða umgang um svæðið, sem er brottfarasalur fyrir öryggisleit, og reyna að hafa uppi á þeim sem er ábyrgur. Nóg sé af öryggismyndavélum í flugstöðinni, þó ekki inni á salerninu og því gæti reynst erfitt að hafa uppi á þeim seka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×