Erlent

Kvótanum breytt en sér ekki fyrir endann á blóðugum mót­mælum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Stúdentar, sumir hverjir með skólatöskurnar enn á bakinu, takast á við lögreglumenn.
Stúdentar, sumir hverjir með skólatöskurnar enn á bakinu, takast á við lögreglumenn. AP/Anik Rahman

Hæstiréttur Bangladess hefur úrskurðað ákvörðun um að þriðjungur opinberra starfa sé frátekinn fyrir afkomendur uppgjafarhermanna og annarra afmarkaðra hópa ógilda. Mikil mótmælaalda hefur riðið yfir Bangladess nýverið og talið að minnst hundrað manns hafi látið lífið í blóðugum átökum við lögreglu.

Í kjölfar frelsisstríðs Bangladess við Pakistan árið 1971 var komið á kvóta á opinberum störfum. Þriðjungur þeirra var frátekinn fyrir afkomendur uppgjafarhermanna. Þessum kvóta var aflétt árið 2018 en hæstiréttur ákvarðaði á dögunum að þessum kvóta yrði komið á á nýjan leik.

Atvinnuleysi ungs fólks er mikið og talið að hátt í átján milljónir manna í landinu séu í atvinnuleit.AP/Rajib Dhar

Það vakti mikla reiði meðal námsmanna í landinu enda er atvinnuleysi ungs fólks útbreitt. Óeirðir brutust út í kjölfarið sem drógu marga til bana. Þegar mest lét á fyrirskipaði ríkisstjórnin útgöngubann og lokuðu fyrir internetaðgang. Herinn fékk þau fyrirmæli að skjóta á mótmælendur sem hlýddu ekki fyrirskipunum þeirra.

Samkvæmt nýjum úrskurði hæstaréttar þar í landi verður kvótinn afmarkaður við fimm prósent opinberra starfa. Stúdentar og samtök mótmælenda hafa fagnað nýjum úrskurði.

Herinn hefur verið kallaður út til allra helstu borga Bangladess.AP/Rajib Dhar

Á götum höfuðborgarinnar Dökku er tómlegt um að líta þar sem útgöngubann er í gildi en bangladesskir miðlar greina frá því að óeirðir haldi áfram víðs vegar um landið. Breska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni félags stúdenta að úrskurðinum sé fagnað en að mótmælin haldi áfram þar til ríkisstjórnin verði við kröfum þeirra.

Sheikh Hasina forsætisráðherra hefur verið við völd í hátt í fimmtán ár. Hún og ríkisstjórn hennar hafa verið gagnrýnd fyrir að kveða niður andstöðu með valdi. Krafan um afsögn hennar hefur orðið æ háværari með hverjum degi mótmæla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×