Innlent

Sú eina sem kemur til greina, af­dráttar­laus ráð­herra og klósettvandræði

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00. Vísir

Kamala Harris er sú eina sem kemur til greina sem frambjóðandi Demókrata í bandarísku forsetakosningunum í nóvember, að mati stjórmálaskýranda. Sigurlíkur Demókrata hafi aukist eftir að Joe Biden forseti hætti við framboð. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Þá verður rætt við menntamálaráðherra sem segir málflutning Viðskiptaráðs um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins.

Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði umtalsvert fyrstu mánuði þessa árs samanborið við í fyrra. Farið verður yfir þróunina en neikvæð áhrif kórónuveirufaraldursins, aukin vanlíðan meðal barna og samfélagsmiðlar eru meðal þess sem kunna að skýra þróunina að sögn forstjóra forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Hún hefur áhyggjur af stöðunni.

Klósettpappír, hægðir og sóðaskapur í Hofstaðaskógi er ein birtingarmynd niðurskurðar til Skógræktarfélags Íslands.  Rætt verður við framkvæmdastjóra sem segir félagið ekki hafa tök á að sinna hreinsunarstarfi líkt og áður. 

Þessar fréttir og fleiri, auk nýjustu íþróttafrétta með Vali Páli, í hádegisfréttum á Bylgjunni klukkan tólf.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 22. júlí 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×