Enski boltinn

Tottenham að fá landa Sons

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Yang Min-hyuk er á förum til Tottenham.
Yang Min-hyuk er á förum til Tottenham. getty/Amphol Thongmueangluang

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að suður-kóreski fótboltamaðurinn Yang Min-hyuk gangi í raðir Tottenham.

Fyrirliði Spurs er Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-min og hann er væntanlega að fá landa sinn til félagsins.

Spurs mætir úrvalsliði suður-kóresku úrvalsdeildarinnar 31. júlí og þá verður væntanlega búið að ganga frá vistaskiptum Yangs.

Þessi átján ára strákur leikur með Gangwon og hefur skorað sjö mörk í 24 leikjum fyrir liðið.

Tottenham endaði í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×