Fótbolti

Guð­laugur Victor til Plymouth

Siggeir Ævarsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson skrifaði undir hjá Plymouth í dag
Guðlaugur Victor Pálsson skrifaði undir hjá Plymouth í dag Plymouth Argyle F.C.

Guðlaugur Victor Pálsson er genginn til liðs við Plymouth Argyle FC en liðið leikur í ensku B-deildinni. Þar hittir hann fyrir sinn gamla þjálfara, Wayne Rooney, en Rooney var þjálfari DC United í Bandaríkjunum þegar Victor lék þar.

Victor, sem er 33 ára, kemur til Englands frá Belgíu en hann var lykilmaður í liði Eupen á liðnu tímabili í belgísku úrvalsdeildinni en liðið féll úr deildinni í vor.

Hann hefur komið nokkuð víða við á ferlinum og var meðal annars á mála hjá Liverpool í upphafi ferilsins. Þá hefur hann leikið eins og áður sagði í Bandaríkjunum, bæði fyrir DC United 2022-23 og fyrir New York Red Bulls 2012. 

Victor hefur einnig verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár og er kominn með 44 landsleiki í sarpinn og eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×