Enski boltinn

Til­boð sam­þykkt í Gallagher en launa­kröfurnar gætu reynst of háar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gallagher er með launahærri mönnum hjá Chelsea.
Gallagher er með launahærri mönnum hjá Chelsea. Dan Mullan/Getty Images

Conor Gallagher vildi ekki skrifa undir samningsframlengingu við Chelsea og félagið hefur því samþykkt tilboð í hann frá Atletico Madrid. Gallagher er talinn spenntur fyrir skiptum til höfuðborgar Spánar en launakröfur hans gætu reynst of háar. 

Chelsea hefur tvívegis í sumar boðið Gallagher samning en hann hefur ekki viljað skrifa undir. Núverandi samningur hans rennur út næsta sumar og Chelsea vill ekki leyfa honum að fara frítt þá.

Gallagher var hluti af liði Englands sem tapaði úrslitaleiknum á EM í sumar. Jonathan Moscrop/Getty Images

Aston Villa og Tottenham settu sig í samband en Chelsea vill helst ekki selja hann til keppinautar í ensku úrvalsdeildinni. Sky Sports greinir frá því að Chelsea hafi samþykkt tilboð frá Atletico Madrid, þrátt fyrir að hin liðið byðu betur.

Gallagher er sagður spenntur fyrir Madrid, það sem gæti hins vegar komið í veg fyrir skiptin eru launakröfurnar en hann er einn af launahærri mönnum hjá Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×