Lífið

Ekki búið spil

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ástin blómstrar enn hjá Dakota og Chris, allavega samkvæmt því sem umboðsmenn Dakota tjá fjölmiðlum nú.
Ástin blómstrar enn hjá Dakota og Chris, allavega samkvæmt því sem umboðsmenn Dakota tjá fjölmiðlum nú. getty

Bandaríska leikkonan Dakota Johnson og breski tónlistarmaðurinn Chris Martin eru enn saman, þvert á það sem slúðurmiðlar greindu frá í gær. Umboðsmenn Dakota þvertaka fyrir sögusagnir um að þau væru á leið hvort í sína áttina. 

The Independent greinir frá þessu. Í gær birtust fréttir, meðal annars á slúðurmiðlinum TMZ og Daily Mail þar sem fullyrt var að Dakota og Martin hefðu hætt við trúlofun.

Forsvarsmenn Dakota segja annað. „Fréttaflutingurinn er ekki sannur. Það leikur allt í lyndi,“ hefur Independent eftir þeim. 

Samkvæmt frétt Daily Mail í gær á að hafa sést til Dakota án trúlofunarhrings á göngu um Malibu í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Þá hafi hún ekki enn mætt á nýjasta tónleikaferðalag Chris Martin og hljómsveitar hans Coldplay. 

Johnson og Martin byrjuðu fyrst saman árið 2017. Þau hættu saman í stutta stund árið 2019 en byrjuðu aftur saman. Fram kom í umfjöllun TMZ í gær að barnsmóðir Martin, leikkonan Gwyneth Paltrow hafi stutt sambandið. Vel hafi farið á með henni og Johnson og hin síðarnefnda hafi átt í góðu sambandi við börn þeirra, hina tuttugu ára gömlu Apple og hinn átján ára gamla Moses.


Tengdar fréttir

Búið spil

Bandaríska leikkonan Dakota Johnson og breski tónlistarmaðurinn Chris Martin eru hætt saman. Þau voru trúlofuð og búin að vera saman í rúm sjö ár en hafa ákveðið að halda í sitthvora áttina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.